Búnaðarrit - 01.01.1928, Blaðsíða 87
81
BÚNAÐARRIT
í útlöndum virðast flestar skepnur smitast í maí,
júní og júli — rjett eftir að farið er að beita. Hvernig
ormarnir komast í lungun er að nokkru leyti óráðin
gáta, það hefir verið reynt að fóðra með ormum, án
þess að það hafi borið árangur, einnig að hafa veikar
skepnur með hraustum. Þetta hafa fleiri vísindamenn
t. d. dr. H. Krabbe reynt. Amerískur vísindamaður
■Guberlet — segir, að sjer hafl tekist að sýkja fje, hann
gaf 6 — 700 lungnaorma-yrmilnga þ. 25. janúar, en 18.
febrúar og 4. mars fann hann lungnaormana í saurnum.
Kindinni var slátrað 21. mars og fann hann þá 175
lungnaorma í barka og lungnapípum. Að öðrum hefir
ekki tekist að sýkja fje, get jeg hugsað að komi af því,
að þeir hafi alið það of vel. Alið fje fær tæplega lungna-
ormaveiki, en öll vanfóðrnn minkar mótstöðuaflið og
veikir skepnurnar þannig, að ormarnir ná þar auðveld-
iega yfirhöndinni. Einnig getur verið, að þeir sem hafa
reynt fóðrun með ormunum árangurslaust hafi að eins
notað orma sem ekki voru æxlunarfærir, og tel jeg það
sennilegast. Það er að eins örsjaldan, að fje kemur
lungnaormaveikt af fjalli, en þar hefir það nægilegt að
jeta og gott næði.
Jafnvel þótt hægt væri að ala fjeð þannig, að það
reynist örugt gegn lungnaormunum, verður það svo dýrt
fóður, að það er hæpið að fjárrækt geti þá talist arð-
vænlegur atvinnuvegur, en fjármenskan er mikið undir
þvi komin, að finna alt af hvernig fjenu líður, og mis-
muna strax því, er eitthvað dregst aftur úr. Fjeð má
aldrei veiða fyrir miklum hrakningum, ekki liggja í
haganum þegar það á að vera á beit, eða liggja og
standa við húsin, snögg aflegging er alt af hætt.uleg.
t*að borgar sig að hugsa vel um fjeð á haustin og
framan af vetri, sjerstaklega í hrakningatíð, leggi ærnar
þá af er mjög erfitt að halda þeim við seinni hluta
vetrar, og því siður að bata þær.
PJestir sem um lungnaorma hafa ritað, halda því
6