Búnaðarrit - 01.01.1928, Side 99
93
BÚNAÐARRIT
ur veikin yfir eins og piága og ógnar beilum sveituin
með auðn og öibyrgð. Oft.ast drepa pó oimarnir að eins
lítinn hluta stofnsins árlega. Fjárstofn vor mun vera um
800,000, reiknað eftir ullar-útflutuingi síðustu ára —
Hrgstofan telur hann nokkuð rninni. — Ef vjer gerum
ráð fyrir að úr lungnaotmaveiki drepist ca. 2°/«, sem
þó mun í flestum árum mega teljast lágt reiknað, miss-
um vjer árlega um 16000 fjár úr lungnaormaveiki. Geri
jeg ráð fyrir að hægt sje að reikna hverja kind á kr.
30,00 að haustlagi. Yeiður því það tap, sem landbún-
aðurinn veiðnr fyrir af gripamissi um kr. 480,000. Auk
þess taps sem bændur bíða við fjármissinn, eyða þeir
mjög miklu fóðri í það fje, er með orrnana gengur, og
kemur ekki að tilætluðum notum, bæði vegna þess að
því er eytt í fje, sem drepst úr lungnaormaveiki, en
eins vegna þess að því er eytt í lungnaormasjúkt fje,
sem gerir ekki fullkomið gagn. Að líkindum er aukin
fóðureyðsla vegna lungnaormanna alt að því eins verð-
mikil eins og hið beina tjón. Eftir þessu munu lungna-
ormarnir kosta landið árlega um 960,000 kr., segi og
skiifa — níu hundruð og sextíu þúsurid krónur. —
Er það gifurleg upphæð, en þó alt of lágt reiknuð, ef
tillit. er tekið til þeirra ára, þegar lungnaormar geysa
aem plága. Þá mun þessi upphæð ótvírætt skifta tnilj-
•ónum.
Vonandi má nú þegar færa þennan skat.t, mjög mikið
niður, með þeim varúðarreglum og þeim hjilparmeðul-
um, sem þegar eru fyrir hendi. Hingað til hefir að eins
lítið verið gert til þess að stemma stigu fyrir þessum
vágesti landbúnaðarins, til þessa heflr litlu veiið varið
af opinberu fje til þess, en tillög einstakra manna til
bess að finna örugga vörn gegn veikinni takmörkuð. —
Jeg hefl ástæðu til þess að vona, að Búnaðaríjelag fs-
lands ætli hjer eftir að taka þetta alvörumál að sjer
og beita sjer fyrir að eitthvað verði gert. Vonum að
árangurinn verði góður.