Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 119
búnaðarrit
113
hefir fengið 0,292 kg. meira af heyi en meðalær í
1. flokki. t stað þess fær hver ær í I. fiokki 0,09 kg.
rúgmjöl. — þá sjest á töflunni og linuritinu að
III. flokkur hefir að eins aukið við þunga sinn á til-
raunaskeiði, en hinir flokkarnir hafa ljetst.
Niðurstaða starheystilraunarinnar 1926 verður
því í stuttu máli þessi:
1. Af starheyinu þarf 3,2 kg. (0,292 : 0.09) i hverja
fóðureiningu.
2. Ær sem vegur í9,5—49,9 kg. þarf i viðhalds-
fóður 0,44 fóðureiningar (1,4 : 3,2).
Þessar tveggja vetra tilraunir með starhey, svara
þá spurningunum á bls. 99 á þessa leið:
1. Af starheyi þarf 2,5—3,2 kg. i hverju fóðurein-
ingu, eftir þvi hve vel verkað heyið er.
2. Viðhaldsfóður œrinnar er h. u. b. 0,44 fóður-
einingar fyrir hver 50 kg. af lifandi þunga.
3. Fóðureiningin mun að jafnaði vera ódýrari i
sœmilega verkuðu starheyi, en i rúgmjöli. Pess vegna
mun ekki borga sig að gefa ám, i innistöðu, rúgmjöl með
starheyi, ef nœgilegur forði er til af þvi sœmilega verkuðu.
2. Tilraun með síldarmjöl, gerð veturinn 1921.
Með tilraun þessari átti að komast að niðurstöðu
um fóðurgildi sildarmjöls, og hvort það svaraði kostn-
aði að gefa ám, í innistöðu, sildarmjöl með heyi.
Fóðurtegund þessi er unnin úr þeim hluta síldar-
innar, sem eftir verður, þegar lýsið hefir verið brætt
úr henni. — Sildarmjöl það, sem notað var við til-
raunina var unnið á Siglufirði.
Tilraun þessi hófst 25. janúar. — Tilrauna-ærnar
8