Búnaðarrit - 01.01.1928, Síða 167
BÚNAÐARRIT
161
í skýrslu danska dýralækna-heilbrigöisráðsins 1911 er
skýrt frá því, að 8,7 af hundraði af sýktum kúm hafi
fengið júfurbólgu. Þessi júfurbóiga er oft mjög illkynjuð,
eyðileggur eitt eða fleiri júfur á hverri kú, án þess
hægt sje við nokkuð að ráða, og ekki ósjaldan drepur
hún skepnurnar.
Af 338 áhöfnum, sem sýket höfðu af gin- og klaufa-
veikinni í Danmörku 1911—12, kom það fram við rann-
sókn að fósturlát átti sjer stað í 139 = 41°/o, að kýrnar
heildust ekki í 103 = 30,5°/o og voru ófrjóvar í 228
= 67,5°/o af áhöfnunum. Hve mikil brögð voru að þess-
um sjúkdómum innan hverrar áhafnar vantar skýrslu
um. En af einstökum tilfellum, sem nefnd eru, má sjá,
að á sumum býlunum heflr helmingurinn af kúnum
látið fóstrinu og alt að 75% verið ófijóar.
ígerðir og vanþrif, sem oft hafa dauðann í för með
sjer, eru og allaigengir eftirsjúkdómar og valda ákaflega
tnikilli afurðarýrnun.
Óbeini kostnaðurinn, sem leiðir af gin- og klaufaveik-
inni er, eins og áður er að vikið, ákaflega mikill. Þegar
sýkin heflr biotist út í einhverju landi, kemur þegar til
kasta yfirvaldanna að glöggva sig á því, á hvern hátt
oigi að hefta sýkina og síðan útiýma henni. Er þá venju-
legast um tvær aðferðir að ræða, sem nota má hverja
flt af fyrir sig eða báðar í senn, eftir því sem hentugt
Þykir. Aðfeiðir þessar eru niðurskurður og sóttkvíanir.
Á síðustu árum hefir einnig verið notað serum, sem
gerir dýrin ónæm fyrir sýkinni um styttri tíma. Not.kun
tessa serums fer stöðugt í vöxt og þykir nú nauðsyn-
legt að nota það í sambandi við niðurskurðinn og sótt-
^víanirnar. Ef búið er að skera niður búfjeð á einhverju
®ýktu svæði eða loka það inni í sótt.kví, heflr það ákaf-
lega mikla þýðingu sem frekari trygging, að innspýta
*Jýrin með serum í öllu nágrenninu. Þau eru þá ónæm
fyrir veikinni á meðan sýkiefnið er að deyja út á hin-
sýktu stöðvum.
11