Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 168
162
BtTNAÐARRIT
Rækilegasti niðurskurðurinn, hin svonefnda „stainping
out“ aðferð, er í því fólgin, að öll sýkt og grunuð dýr
eru drepin og grafln eða brend með húð og hári. Öll
hús sótthreinsuð og látin standa skepnutóm í lengri
tíma. Aðfeið þessi heflr verið notuð mjög mikið í
Norður-Ameríku, Englandi, Svíþjóð og fleiri löndum. Að-
ferðin er ákaflega dýr og hrottaleg. Myndir frá Ameríku
sýna aðferðina, eins og hún er framkvæmd þar. Vold-
ugar vjelar eru látnar grafa gríðarstóra gröf og síðan
eru dýrin rekin í hana hundruðum og þúsundum saman.
Niðri í gröfinni eru svo dýrin skotin, og skinnin skorin
í sundur, til þess að útiloka að skrokkarnir verði grafnir
upp aftur í hagnaðarskyni. Því næst eru skrokkarnir
huldir með kalki, og loks er gröfin fylt með moldinni,
sem mokað var upp úr henni. — En þetta er aðferð,
sem á skömmum tíma getur alveg upprætt veikina. en
þá þarf líka hver einasti maður eð skýra frá sýkinni
jafnskjótt og hún breiðist út, og yfirvöldin að vera fljót
að ákveða sig með að framkvæma verkið. Oft vill þó
bregða út af þessu, stundum vegna þess að almenningur
þekkir ekki sýkina fyr en í ótíma, og líka vegna þess,
að mörgum er sárt uin skepnurnar og vilja sleppa hjá
niðurskurði, ef unt er. Ef alt gengur ekki eins og það
á að ganga, getur afskaplega mikið fje eyðst áður en
nokkur verulegur árangur fæst. Þannig gekk það í Eng-
landi þegar sýkin braust þar út eftir 1920. í 3 ár sam-
fleitt var haldið áfram að skera niður, áður en heppnað-
ist að ná valdi á sjúkdómnum, enda kostaði niðurskurð-
urinn ríkissjóðinn 140—150 miljónir króna. Samtímis
var skorið niður fyrir nærfelt 20 milj. króna í Svíþjóð.
Árið 1914 var skorið niður fyrir nær 40 milj. króna í
Norður-Ameríku, og svona mætti halda áfram að telja.
Á seinni árum hefir þó verið notuð minna hrottaleg að-
ferð við niðurskurðinn í nokkrum löndum. Hún er í því
fólgin að alt, sem verðmætt er af dýrunum, sem skorin
eru niður, skinn, kjöt og feiti, er hirt og sótthreinsað