Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 169
BÚNAÐARRIT
163
og síðan selt. Þessi aðferð er auðvitað ekki eins örugg
til Utrýmingar, en hún er nokkru kostnaðarminni.
Niðurskurður og eyðilegging á öllum sýktum búpen-
ingi er auðvitað kröftugasta ráðið til þess að hindra út-
breiðslu og þróun sýkiefnisins, með því að þessi aðferð
eyðileggur alt það sýkiefni sem hún nær til. En auk
þess, sem svona löguð útrýming kostar ógrynni fjár
fylgir henni einnig sá ókostur að hún getur komið hús-
dýraræktinni á kaldan klaka. Ef mjög verðmæt kynbóta-
dýr sýkjast, standa menn gagnvart tvennum vandræð-
um, annaðtveggja að hætta niðurskurðinum, og þá hefir
öllu því fje verið kastað á glæ, sem eytt hefir verið í
hann, eða þá að eyðileggja kynbótagripi, sem getur verið
alveg ómetanlegt verðmæti fyrir húsdýraræktina. Gildir
þetta ekki síst þar, sem húsdýrarækt stendur á háu
stigi. Atvik geta og valdið því, að minna gagn verði að
niðurskurði en til var ætlast. Þannig var það í Limburg
í Hollandi. Þar var skorinn niður mikill hluti búpenings-
ins, til þess að losna við sýkina, og þetta tókst, sýkinni
var útrýmt með öllu. En nú þuifti að fylla í skörðin og
kaupa dýr úr öðrum hollenskum hjeruðum. Þetta var gert,
en samtímis dýrunum fylgdi gin- og klaufaveikin og lagði
nú hjeraðið undir að nýju.
En þótt hin aðferðin, sóttkvíun, sje viðhöfð, kostar
hún líka stórfje og veldur þeim miklum óþægindum og
tjóni sem í sóttkvíun lenda. í aðaldráttum er sóttkví-
unin framkvæmd á þann hátt, að víst svæði kringum
hin sýktu heimili er innlokað og allur samgangur
á mönnum, dýrum og afurðum annaðtveggja bannaður
eða leyfður með sjerstöku eftirliti og varúðarráðstöfun-
um. Utan um þennan sóttkvíunarhring, er svo dreginn
annar hringur, sem nær yfir stórt svæði — fjarlægðin
milli hringanna 10 kilometrar eða meira — svonefndur
athugunar hringur. Samgöngur og flutningar frá þessum
ýtri hring má einungis fara fram eftir föstum og ströng-
Um reglum. Sleppi sýkin úr innri söttkvínni og út í