Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 177
BUNAÐARiíIT
171
um, jafn lengi lifir sýkiefnið og varðveitir sýkimátt sinn.
Sýkiefni, sem á þenna hátt er geymt rakt í venjuleg-
um stofuhita, getur lifað og sýkt í vikur og mánuði.
Oft virðist smitiefnið þola illa þurk eða uppþoinun, þó er
mótstöðukraftur þess mjög mismunandi, og fer það að
öðrum þiæði eftir efninu sem uppþurkað er, en að hin-
um eftir því, hve hröð uppþornunin er og hve mikil.
Stundum eyðilegst smitiefmð mjög fljótt við þuikinn,
en í öðrum tilfellum er það iifandi og smithæft man-
uðum saman. Tilraunir með halm og hey hafa leitt í
ijós, að smitefnið getur haldið sjer lifandi og sýkingar-
fært í þeim í 5 mánuði eða lengur. Eins og önnur sýki-
efni drepst sýkiefni gin- og klaufaveikinnar við suðu á
mjög stuttum tima. Það þolir 80 gráða hita á Celcius
í 3 mínútur og 85° hita í 1 mínútu. Þetta fer þá nokk-
uð eftir eiginlegleikum þess efnis, sem hitað er. Þannig
lifir það lengur í efni sem þyknar eða hleypur við upp-
hitun, heldur en í þunnum vökva, sem ekkert breytist
við hitann. Kulda þolir þetta sýkiefni, eins og svo mörg
önnur sýkiefni, ágætlega, og getur lifað mjög lengi í frosnu
ástandi. Venjuleg sótthreiusunarlyf eyðileggja sýkiefnið
auðveldlega og mótstöðukraftur þess gagnvart þeim er
«kki mikill.
Jeg hefi hjer að framan drepið á nokkur helstu atriðin,
«em snerta gin- og klaufaveikina og orsakir hennar. Tel
jeg nauðsynlegt að mönnum sje þetta nokkuð kunnugt,
til þess að þeir viti betur skil á, hvað er að varast og
hvernig við eigum að verjast sýkinni. Álít jeg að skiln-
ingur almennings á málinu sje traustustu stoðirnar
sem renna undir sóttvarnarlöggjöf okkar í þessum efnum.
Með vilja hefi jeg leitt hjá mjer að lýsa sjálfu sóttar-
farinu út í æsar, þar sem við verðum að vona og keppa
að því. að veikin berist aldrei hingað til landsins. í eftir-
farandi línum vil jeg stuttlega gera grein fyrir því, hvað
gera eigi til þess að verjast innflutningi sýkinnur.