Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 197
BÚNAÐARRIT
191
Eftir að reynslan fór fram hefir herflnu verið breytt
þannig, að í stað tvíeykisstangarinnar er settur stuttur
stangarstubbur (14) úr járni, og undir hann framan-
verðan er fest hjól (16). Ásinn, sem hjólið er fest við,
er hreyfanlega festur við stangarbútinn og getur leikið
til þegar herfinu er snúið.
2. Rótlicrfl Lúðvíks Jónssouar.
Reynd voru tvö herfi (sbr. bls. 199), annað með 7
löppum, en hitt með 6 löppum.
Grind 6 lappa herfisins er 100 cm. breið og 185 cm.
löng. í grindinni eru 3 þverbitar með 43 cm. millibili.
Langbitarnir í grindinni eru 5, 3 þeirra eru aðalbitar,
en 2 eru styrktarslár. Langbitinn í miðju herfinu nær
67 cm. fram fyrir fremsta þverbitann, og endar í beisli
til þess að festa hemlana í, þegar beitt er fyrir herfið.
Ystu iangbitarnir í herfinu ná líka fram fyrir fremsta
þverbitann og beygjast á ská inn að miðbitanum aftan
við beislið. Afturhluti herfisgrindarinnar er þess vegna
ferhyrningur og framhluti hennar — framan frá beisli
og aftur að fremsta þveibita — þríhyrningur.
Lappirnar í herfinu eru festar í þverbitana, 2 í hvorn
bita. Bilið frá ystu löpp vinstra megin og að ystu löpp
hægra megin er 52 cm., er það vinslubreidd herfisins.
Lappirnar eru smíðaðar úr flötu, ferstrendu járni, 31 X
13 mm. Snýr efnið þannig í þeim, að þykt járnsins
verður breidd lappanna. Þær eru bognar, nær beygjan
32 cm. aftur fyrir bitana, sem þær eru festar við, en
oddarnir á þeim ná 40 cm. niður fyrir bit.ana. Lapp-
irnar eru stífar og gefa ekki eftir við átak, nema herfið
sje ofreynt. Á oddana á þeim eru festir 50 mm. breiðir
stálskerar.
Undir herfinu eru 3 meiðar, 1 undir hvorri hlið og
1 undir miðjunni framanverðri. Meiðarnir eru færan-
legir upp og niður, og er vinsludýpt herfisins takmörkuð
nieð þeim.