Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 207
BÚNAÐARRIT
201
hestavinnan aukist. Bendir það rjetta leið, því írekar
ber að nota þá aðferð, sem krefur mikillar hestavinnu
og lítillar mannvinnu, en þá aðferð, er krefur mikillar
mannavinnu og lítillar hestavinnu, ef hestafli og aðstaða
leyfir.
Tafla I. — Yiuslnkostnaðnr á ha., sainkvæmt tilranu á
Blikastöðnm vorið 1927.
Yinsluaðferð: Mannavinna kaup 75 au. á klst. Hestavinna kaup 25 au. á klst. Kostn. alls
Vinnust. kr. Vinnust. kr* kr.
Plægt og herfað (1. reitur) .... 119 st. 14mín. 89,43 330 st. 46mín. 82,69 172,12
Herfað með Rúðólfi (2. reitur) .... 46 — 6 — 48,08 188 — 35 — 47,15 95,23
Herfað með Lúð- viks-herfi (4. r.) 79 — 22 — 59,53 162 — 34 — 40,64 100,17
Herfað með Hank- mó-herfi (6. r.) 56— 17 — 42,21 194— 22 — 48,59 90,80
Munurinn á vinslukostnaði hinna þriggja herfuðu
reita er svo lítill, samkvæmt tilrauninni, að ekki getur
talist fullnægjandi til þess, að gera á milli herfanna.
Yinslukostnaður plægða reitsins er lang mestur. Er sá
kostnaður að sumu leyti óeðlilegur. Reiturinn er plægður
og herfaður í einni hviðu, á þeim tíma sem bersýni-
lega er óhentugur til þeirrar vinslu. Reiturinn er því
ekki unninn á þann hátt, sem reynslan hefir sýnt, að
helst ber að vinna við venjulega plógsljettun — plægja
að haustinu og herfa á klaka. Auk þess er þessi aeitur
dýpra unninn en hinir reitirnir.