Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 210
204
BÚNAÐARRIT
sjer, virtist það stafa af þvi að grasrótin var rifln upp
með rótherfinu, áður en hún var nægilega skorin með
saxherflnu.
Ásinn, sem hjólið er fest við, reyndist of veikur og
bognaði.
Yfirleitt voru vinnubrögðin þannig, að ekki virðist
álitlegt að vinna landið á þennan hátt, þótt það sje
framkvæmanlegt. Það er vandræðavinna, og henni miðar
ekki svo fljótt að vinsluhraðinn geri hana rjettmæta.
Drá,tta,rl»un{fi liertauua.
Því miður var ekki hægt að mæla dráttarþunga herf-
anna um leið og tilraunareitirnir voru unnir. Yar því
gerð sjerstök tilraun með herfln, og drátt.arþungi þeirra
mældur 16. sept. 1927. Til þess var valin, svo að segja
hallalaus, spilda í mýrinni fyrir sunnan túnið á Blika-
stöðum. Liggur spildan meðfram gömlum vörsluskurði,
og er þur orðin af hans völdum og töluvert farin að
myldast. Áður heflr verið þarna venjulegt mýraþýfi, en
þúfurnar hafa stækkað eftir því sem mýrin þornaði, og
voru orðnar stærri en alment gerist um mýraþýfl.
Áður en tilraunin byrjaði var herfað aftur og fram
um spilduna, 2 umfeiðir með Rúðólfs-herfinu, til þess
að jafna verstu ójöfnurnar. Yið tilraunina var herfað
með hverju herfl 100 metra, fram og aftur, og átakið
mælt með Scháffer & Budenbergs aflmæli.
Eins og von var reyndist átakið mjög reikult, eftir
því hvort herfln námu í þúfur eða losnuðu úr þeim,
allramest bar á því með rótherfið. Var þvi mjög örðugt
að fá ákveðið meðal átak.
Auk hinna fyrnefndu herfa, var reynt Hankmó-herfi
Nr. 2. — Fjaðraherfið var ekki reynt.
Tölurnar í töflu II leiða í raun og veru ekkert nýtt
í ljös, fram yflr það, sem sjeð varð við vinslu tilrauna-
reitanna, en þær árjetta það rækilega. Úað er sist of