Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 216
210
BtíN AÐARRIT
Vmsögfu uin lvorfi LfíðviliH Jónwsoniir.
Þótt herfin sjeu fyrst og fremst smíðuð til þess, að
vinna óplægða jörð, fer heildar-nothæfi þeirra lika mjög
mikið eftir því, hvernig þau reynast við að vinna plóg-
strengi. Yegna þess að herfin hafa ekki verið reynd
nema á óplægðu landi, nær umsögnin ekki til annara
nota. Umsögn um heildar-nothæfi herfanna fæst ekki fyr
en að lokinni frekari reynslu.
Saxherfi Lúðviks Jónssonar vinnur sœmilega vél
grjötlaust smáþýfi, ef notað er gott rótherfi með því,
til að rífa upp það sem saxherfið slcer — shr. Athug-
anir og bendingar 1.—3. hjer að framan. — En herfið
er seinvirhara en onnur sheraherfi, sem reynd voru
með því (Hanhmó og Rúðólfur) og virðist yfirleitt ehhi
hafa neina yfirburði fram yfir þau, nema þann host,
að með því er hœgt að framhvæma vinsluna með litlum
hestafla.
Á myldnu landi er lierfið hœfilegur dráttur fyrir tvo
hesta, og þarf þá sjaldan að þyngja það umfram öhu-
manninn. En á seigu lundi þarf að þyngja það, til þess
að það risti nœgilega djúpt, og er herfið þá helst til
þungur dráttur fyrir tvo liesta.
Dragtœhi herfisins (stöng með einum framhemli) eru
mjög slœm og óþœgileg fyrir hestana.1)
Herfið er fremur vel smíðað, en tœplega nógu traust
fyrir ógætilega meðferð, t. d. hrappa snúninga eða
þriggja hesta drátt, enda er lierfið smíðað fyrir tvo
hesta.
1) Breyting sú, sem gerð hofir verið á herfimi, eftir að aðal-
reynslan fór fram — hjól sett í stað stangar — horfir til mik-
illa bóta, en hjólið er of litið, og ásinn, sem það er fest við, of
veikur. Sennilega væri betra að hafa meið í stað hjólsins.