Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 217
BÚNAÐARRIT
211
Rótherfi Lúðviks Jónssonar, með 6 löppum, vinnur vél
hlutverk sitt að rífa laust og röta til, því sem skorið
er með saxherfinu. Vinslubreidd lierfisins er mjóg lítil,
en ef því er beitt djíipt, er það samt ofviða fyrir tvo
hesta. Þess vegna vœri betra, að herfið vœri stœrra og
œtlað fyrir þrjá liesta.
Lögun lappanna er hentug og afstaða þeirra og
millibil hœfilegt.
Rótherfi Lúðvíks Jónssonar, með 7 löppum, er ónot-
hæft sökum þess hve afstaða lappanna innbyrðis er
óhentug, og herfið þess vegna fram úr hófi gjarnt á
að draga með sjer.
II. Tilraon mcð plóga.
Tilraunin fór fram á Blikastöðum í Mosfellssveit dag-
ana 15. og 16. sept. 1927. Til plæginganna var yalin
nokkurra ára gömul græðisljetta, vel gróin, en illa sljett.
Sljettan er ekki alveg lárjett, en hallinn lítill og jafn.
Fyrst voru plægð nokkur plógför, með plógunum, í
óræktarmóa, og svo voru plægð tvö plógför fram og
aftur, með hverjum plóg, á tilraunasvæðinu. Þegar seinna
plógfarið var plægt, var dráttarþungi plóganna mældur
báðar leiðir, 140 metra, eða 70 metra hvora leið. Dýpt
og breidd plógfarsins var mæld með 10 metra millibili.
Sami maður plægði með öllum plógunum, með tveimur
hestum, og altaf með sömu hestunum.
Dráttarþungi plóganna var mældur með Scháffer &
Budenbergs aflmæli, með sjálfritara, og dráttarþunginn
reiknaður eftir línuritinu.