Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 232
226
JBÚNAÐARRIT
notkan, mjög þungur í drœtti og lítt nothœfur, nema
hann sje lagaður og gerður grunnskreiðari. — Að þvi
fengnu fer plógurinn vel i jörð, er auðveldur i notkun,
veltir vel og er fremur tjettur i drœtti. En samt er
hann ofviða tveimur hestum og þgrfti að vera með
beisli fgrir 3 hesta. Skerinn á plógnum œtti að vera
breiðari. •
Arvika 9 er traustur plógur, en óhentugur og ónot-
hœfur til þess að vinna venjulega jörð.
Um Álcureyrar-plöqinn veröur ekki gefln nein um-
sögn. Hinn reyndi plógur var gamall og siitinn, og var
hafður með til samanbuiðar. Hann reyndist fremur
ljettur í drætti, en velti mjög illa. — Smíði Akureyrar-
plóganna er löngu hætt, gæði þeirra og gallar hafa því
litla þýðingu fyrir þá, sem nú kaupa og nota plóga.
Norrahammar 29 fær heidur ekki neina umsögn að
þessu sinni. Það viiðist ekki rjett að dæma hann, eftir
þeirri aflmælingu og reynslu sem fengin er.
Eigandi hins reynda plógs, hr. Kristinn Guðmundsson,
hefir gefið nefndinni þær upplýsingar, að þessir plógar
sæki altaf of mikið í jöið, þegar þeir sjeu notaðir
óbreyttir eins og þair koma frá verksmiðjunni. Þarf því
að laga þá og gera þá grunnskreiðari, svo þeir vinni
vel. Hinn reyndi plógur hafði verið lagaður mjög óheppi-
lega, oddurinn á skeranum hafði verið beygður upp á
við, í stað þess að breyta stefnu skerans og samræma
hana við stefnuna á plógilinni. Eins og eðlilegt er reynd-
ist plógurinn þess vegna mjög valtur og óhægur í stjórn.
Hvernig plógurinn hefði reynst, ef hann hefði verið
heppilega lagaður, skal látið ósagt, en óefað heíði hann
þá reynst öðruvísi og betur.
Einn dómnefndarmaðurinn (Á. G. E.), sem hefir baft
tækifæri til að sjá hinar mismunandi gerðir af plógum>