Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 302
29t>
BtiNAÐAIÍKIT
Á hinn bóginn er hægt að hita dún svo varlega, a&
það ætti lítið að gera honum til. Tel jeg því, að eins
og dúnþekkingu er nú komið, þá sje ástæðulaust að
kaldhreinsa æðardún vegna gæða.
Bökunin er sá hluti dúnhreinsunarinnar, sem venju-
lega veldur mestu ergelsi og mestu ræður um afköstin.
Eins vel og gengur úr góðum, vel bökuðum dún, eins
illa gengur úr illa bökuðum. Og það segi jeg satt, að
heldur vil jeg kaldhreinsa en hreinsa illa bakaðan dún.
Ýmsir ókostir eru við eldbökun, enda þótt aðferðirnar
sjeu mjög misjafnlega góðar, svo sem:
1. Hún er mannfrek og fyrirhafnarsöm.
2. Hitinn vill altaf verða ójafn.
3. Dúnninn mishitnar og misþornar.
4. Dúnninn er ýmist ofsaheitur (að neðan) eða kaldur
(að ofan).
5. Hún þarfnast svo mikillar æfingar, kunnáttu og
vandvirkni, ef vel á að fara, að nærri stappar því
ótrúlega.
Vel getur verið að meira hafl borið á þessum göllum
hjá mjer en öðrum. Um það skal jeg ekki dæma. En
hitt veit jeg, að mjer fanst öll sú fyrirhöfn lítt viðunandi.
Það er því langt síðan að jeg, og faðir minn, fórum að
brjóta heilann um að þurka dún á einhvern hagkvæmari
hátt. Urðu allar þær tilraunir að eins til armæðu, þangað
til í fyrrahaust, að okkur tókst að gera þurktæki, sem
hefir reynst mætavel. Eins og áður er sagt er áhald
þetta einskonar þurkhús, í sambandi við „Bez“-olíuvjeL
Þurkunin fer fram við heitt loft. Við höfum notað 80—
100° C. hita, en hafa má bæði meiri og minni hita
eftir vild. Dúnninn þornar á V2—1 klst., og gegnþornar
allur jafnt. Fyrirhöfn er engin önnur en sú, að taka
dúninn út, og láta kaldan dún inn. Er það 5 mínútna
verk á hver 30—50 kv. af hreinsuðum dún. 1 kg. af
steinolíu hefir enst okkur í 8 klst.. Á þeim tíma full-