Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 306
300
BÚNAÐARRÍT
mikiÖ fram með flýti síöaD. Álít jeg, að óvanir menn
sjeu öllu lengur að ná sæmilegu valdi á verkinu með
þessari aðferð, en þó varla sem nemur. Og birtu þarf
betri.
Svo að menn sjái, að jeg fer ekki hjer með neina
markleysu, skal jeg geta þessa: Dúnn minn síðastl. ár
var 111 pd. Alls var hreinsað í 42 daga. Fyrir 1. okt.
hafði verið hreinsað í 12 daga. í okt. var hreinsað í
10 daga, og í nóv. 20 daga. Fyrir 10. okt. hafði jeg
hreinsað 33,70 pd. Aldrei var hreinsað við Ijós. Af þess-
um 111 pd. hreinsaði faðir minn 16,71 pd., og gætti
þurksins í 20 daga. Hitt hreinsaði jeg sjálfar. Aðrir
komu ekki nálægt hreinsunmni. Ekki var áður búið að
rífa úr nokkru, og siðastl. vor var dúnninn mjög lítið
hristur. Ekkert vil jeg fullyrða um, hvernig verkið var
af hendi leyst. Sambandið fjekk um 80 pd. til að seija,
og jeg veit ekki hvaða vitnisburð dúnninn fær þar. En
varpmaður einn, sem þaulvanur er dún til margra ára,
og er talinn vandlátur, spurði mig blátt áfram, hvernig
jeg fengi dúninn „svona fisalausan", þegar hann sá
dúninn, sem til Sambandsins fór. — Við þessa hreinsun
er ennfremur að athuga:
1. Jeg þurfti daglega að sinna búverkum, sem lítil
voru þó.
2. Jeg var að smábreyta grindinni minni, sem að minsta
kosti hefir tafið mig um 2 hálfa daga.
3. Heita mátti að daglega yrðu einhverjar frátafir í
hreinsunartímanum, frá */2 klst upp í hálfa daga,
gestir, tafir við kindur 0. m. fl. Fiesta dagana í nóv.,
sem taldir eru í þeim 42 dögum, hreinsaði jeg í 6
klst., einstaka dag 7, og minst 2Va klst. Loks vil
jeg geta þess, að dúnvjel föður míns notaði jeg að
eins til að rífa úr ca. 25 pd.