Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 311
BTJNAÐARRIT
305
Fram á síðustu tíma hefir mestallur æðardÚDn, sem
til útlanda hefir farið, gengið um hendur heildsala í
Kaupmannahöfn. Framleiðendur hafa selt kaupmönnum
hjer á landi, og þeir aftur látið heildsala í K.höfn selja
fyrir sig. Eða dúnbændur hafa staðið í beinu sambandi
við heildsalana og látið pá selja fyrir sig. Heildsalarnir
dönsku, eða dansk-íslensku, hafa svo aftur selt heildsöl-
um eða stórvefnaðarvöruverslunum, og þær svo loks selt
neytendum í smásölu. Ed mestur dúnninn fór til Þýska-
lands, Austurríkis og þó sjerstaklega til Rússlands, fyrir
striðið.
Nú á síðustu árum hefir að eins orðið sú breyting á,
að einstaka íslenskur heildsali hefir selt stórvöruhúsum,
án milligöngu dönsku heildsalanna, og annað hitt, að
bændur eru farnir að leggja þó nokkuð af dún sínum
inn í kaupfjelögin, og Sambandið síðan selt fyrir þau.
Hefir dúnverslun Sambandsins þó sennilega gengið lang-
mest í gegn um Hafnar-deildina.1)
Tvo síðastliðna vetur var jeg á ferð í Kaupmannahöfn,
m. a. til þess, að kynna mjer ýmislegt viðvíkjandi æðar-
dún og sölu hans. Jeg hafði dálítinn slatta af dún með
í bæði skiftin. Fyrri veturinn var jeg á ferð ijett fyrir
jólin. Þá seldi jeg „Magasin du Nord“ í Kaupmannahöfn
á 60 kr. danskar pr. kg. — Á sama tíma var íslenskur
æðardúnn seldur þar út í smásölu á kr. 120,00 pr. kg.,
og í annari stórverslun þar á kr. 110,00 pr. kg. Græn-
lenskur dúnn kostaði kr. 120,00 pr. kg. hja báðum. fessi
íslenski æðardúnn var mjög svipaður mínum að gæð-
um; heldur eðlisbetri en minn var þá, en ekki eins
hreinn. Meðal annara, sem jeg fann að máli í það sinn,
var danskt heildsölu-firma. Voru þeir mjög kurteisir og
prúðir, skoðuðu dún minn gaumgæfilega og lofuðu mjer
að sjá allar sínar dúnbirgðir og dún-„prufur“. Þar sá
1) Iimanlnnds-verslunin hefir sennilega aukist nokkuð á síð-
ustu árum, sjerstaklega í Reykjavik. En erlendi markaðurinn
ræður þó verðinu gersamlega.
20