Búnaðarrit - 01.01.1928, Síða 314
308
BÚNAÐARRIT
Er þá um að gera að velja þær verslanirnar, sem dýr-
astar eru, og auðmennirnir skifta mest við.
Fyrsta atriðið, vöruvöndunin, held jeg, að alls ekki
geti orkað tvímælis.
Um annað atriðið held jeg, sömuleiðis, að allir sjeu
sammála í hjarta sínu. Jeg ætla að biðja þá, sem efast.
um þetta, að hugsa sór, að annaðhvort þeir sjálfir, eða
sá maður, sem þeir treystu best til starfans, væru fram-
kvæmdarstjórar fyrirtækisins. Jeg dreg ekki dul á það,
að jeg hugsa mjer helst, að Samband ísl. samvinnu-
fjelaga færi með söluna. Á síðustu árum heflr það selt
mjög mikið af æðardún, og farist salan mikið sæmilega
úr hendi, að jeg hygg. Annars ætti það að gilda einu
hver stjórnaði sölunni, væri það hæfur og áreiðanlegur
maður.
Þriðja uppástungan verður vafasömust, að líkindum.
Aðalatriðið er það, hvort það tekst að vekja áhuga
þessara stórverslana fyrir sölunni. Takist það, er björn-
inn unninn, og víkkandi og vaxandi markaður geflnn.
Auk þess ætti salan að verða langfyrirhafnarminst með
þessu lagi, og milliliðir fáir.
í undanförnu greinarkorni hefl jeg reynt að skýra frá
ýmsu, sem jeg veit um æðardún og æðardúns-mál, og
ýmsu, sem jeg þykist vita og held að til bóta mætti
verða. Margt er þó ótalið og á mörgu stiklað. Eins og
jeg tók fram í fyrstu, þá er greinin stíluð til dúobænda,
fyrst og fremst, og verður að miðast við það. Hefði þó
ef til vill verið rjett, að hafa hana ítarlegri, þar eð jeg
minnist ekki, að hafa sjeð neitt verulegt skrifað um
æðardún fyr. Á greinin að vera einskonar opið brjef til
dúnbænda, og væntir svara, eins og önnur brjef. Hafl
jeg einhversstaðar farið rangt með eða slept úr atriðum
1 meðferð dúnsins og hreinsun, er jeg þeim mönnum
mjðg þakklátur, sem vildu leiðrjetta villur mínar.