Búnaðarrit - 01.01.1928, Síða 322
316
BÖNAÐARRIT
bændur þessir stofnuðu þá hin svonefndu Húsmanna-
landskiftingarfjelög (Husmandsudstykningsforeninger), og
er deild í hverju amti. Markmiðið er að safna saman
hlutafje eða lánsfje á sameiginlega ábyrgð þessara smá-
bænda, til að kaupa stórbýli þegar tækifæri bjóðast, og
skifta þeim sundur í smábýli, þó svo stór, að fjölskyld-
unni sje trygt nægilegt verksvið og fjárhagslega góð af-
koma. Sem dæmi um starfsemi þessa fjelagsskapar má
nefna, að deildin í Álaborgaramti keypti árið 1912 stór-
býli nálægt Álaborg, sem heitir Store Restrup, og kost-
aði býlið 400 þús. kr. Akurlendi, skógur og beitiland
var til Bamans 1500 tunnur. 600 tunnum af þessu landi
var skift í 33 parta, hver 15—30 tunnur að stærð-
10—16 tunnur af akurlendi fylgdi hverjum parti, hitt
úthagi. Þegar þessi 33 smábýli voru boðin út, komu
275 umsækjendur. Fjelagsmenn sátu fyrir kaupum.
Vorið 1913 ijet fjelagið sá í alla akra, byggja alla nauð-
synlega vegi, ræsa fram votlendi og leggja vatnsleiðslu.
Sama vor byrjuðu nýju eigendurnir að byggja ibúðir og
útihús. Teikningar og samninga við húsasmíðina þurfti
að samþykkja af fjelaginu, en eigendur gátu sjálfir
unnið að byggingunni og haft eftirlit. Húsin þurftu að
vera tilbúin fyrir haustið. Þá fluttu nýju eigendurnir
með konum og börnum í búðarhúsin, en hesta, kýr,
svín og hæns í úthýsin, og þegar byrjað að uppskera
korn. kartöflur, rófur o. fl. Hey áður hirt, og búrekstur
á 33 nýbýlum í fullu gengi, eftir 1 ár. Þetta má kalla
vel að verið.
Skilyrði fyrir því að menn fái þessi smábýli keypt eru þau,
að umbiðjandi eigi 1000 kr. skuldlaust (þannig fyrir 1914).
Lán, gegn fyrsta veðrjetti, í nýbýlunum fást hjá láns-
fjelögunum, sem haía hvert í sínu umdæmi fasta virð-
ingarmenn, og virða þeir þessi býli jafnan hátt. Láns-
fjelögin lána út á V*—8/s virðingarverðs, gegn 41/*, en
ríkissjóður út á x/s virðingarverðs, gegn öðrum veðrjetti
og 4°/o vöxtum. Venjulega selur fjelagið með nokkrum