Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 334
328
BÚNAÐARRIT
6. gr.
Nemandinn skal halda dagbók um veðuríar og um
vinnu sína. Vinnuskýrslu skal hann gera upp um hverja
helgi, í þYÍ formi sem Búnaðarfjelag íslands ákveður,
og skal húsbóndi hans eða verkstjóri líta eftir að vinnu-
skýrslan sje rjett færð, og skrifa upp á hana.
Þeir nemendur, sem stunda námið á einum staðr
skulu í dagbókina rita stutta lýsingu af jörð og búskap
bóndans, s. s. um kosti og galla bújarðarinnar, húsa-
skipun, bústofn og búrekstur, framkvæmdir bóndans í
húsabyggingum og jarðabótum o. s. frv. Á tilsvarandi
hátt skulu þeir nemendur, sem vinna í tilraunastöðvum,
gefa yflrlit yflr viðfangsefni tilraunanna og iýsa fram-
kvæmd þeirra.
Hinir, sem vinna með vinnuflokkum, skulu á tilsvar-
andi hátt lýsa fjelagsskap bænda í því bygðarlagi til
búnaðarbóta í jarðrækt og búfjárrækt. Þessar skýrslur,
eða afrit af þeim, skal nemandinn láta fylgja vinnu-
skýrslum þeim, er um ræðir í 7. gr.
7. gr.
Að loknu námi skal nemandinn gera eina aðalskýrslu
yfir alla vinnu sína á námstímanum, er sýni bæði
hversu lengi hann heflr unnið að hverju verki, og eins
hitt, hversu miklu hefir verið afkastað af jarðabóta-
störfum á heimilinu eða af vinnuflokknum, meðan hann
stundaði námið.
Húsbóndi eða flokksstjóri vottar að þessar skýrslur
og utreikningar sjeu rjettir.
8. gr.
Á vinnuskýrslur þær, er 7. gr. ræðir um, skal hús-
bóndi eða flokksstjóri rita vottorð um verklega hæfileika
nemandans, dugnað, ástundun og framfarir, og sam-
kvæmt þessu gera tillögur um námsstyrk frá Búnaðar-