Búnaðarrit - 01.01.1928, Page 342
336
BÚNAÐARRÍT
12. gr.
Þeir, sem gera nýja matjurtagaröa, geta vænst styrks úr rikis-
sjóði, er nemi alt aö 1/B þess, er gerð þeirra kostar, Og þaí
með talinn girðingarkostnaður, en eigi áburður. Styrkur-
inn verður þó eigi greiddur fyr en garðurinn hefir gefið
sæmilega uppskeru, að áliti Búnaðarfjelags íslands (enda
sje garðstæðið valið eða samþykt af trúnaðarmanni þess).
Styrkur verður eigi veittur til minni garða en 400 fermetra.
13. gr.
Mat og mæling jarðræktarframkvæmda þeirra, er um ræðir í
7.—12. gr., gera venjulega trúnaðarmenn þeir, sem í 6. gr. getur,
en ella ráðunautar Búnaðarfjelags Islands eða aðrir, sem það
velur til þess. Mat þetta og mæling fer fram eftir reglum, sem
settar eru á þann hátt, er segir i 7. gr. Ágreining um kostnað
við fyrirtæki þau, sem styrk fá úr ríkissjóði, samkv. 7.—12. gr.
úrskurðar ráðherra.
14. gr.
Ríkisstjórnin greiðir styrk samkvæmt þessum kafla,
þegar undirbúningur sá hefir farið fram, sem lög þessi
og reglugerð eða reglugerðir, er settar verða samkvæmt
þeim, segja fyrir um.
III. kafli.
Um vjelayrkju o. fl.
15. gr.
Úr ríkissjóði má árlega veita fje til að starfrækja og
gera tilraunir með jarðiæktarvjelar, svo sem þúfnabana,
skurðgröfur og aðrar stærri nýtískuvjelar, sem eru við
hæfi hjer á landi. Árlegt tillag úr ríkissjóði má þó ekki
nema meiru en svo, að tekjur Vjelasjóðs og tillag ríkis-
sjóðs verði samtals 50,000 kr.