Hlín - 01.01.1919, Qupperneq 9
Híin
9
Fundurinn felur Halldóru Bjarnadóttur að ferðast um
sambandssvæðið og korna á sýslusamböndum og á ann-
an liátt greiða fyrir því máli, eftir því sem fje það hrekk-
ur, senr safnað hefur verið í því augnamiði.
XIII. Gefin skýrsla um „Hlín“, ársrit S. N. K.
XIV. Rætt um íslenska kvenbúninga, en engin ályktun
tekin.
XV. Lagðir fram og samþyktir reikningar S. N. K. end-
urskoðaðir.
XVI. Stjórnin endurkosin í einu hljóði: Halldóra
Bjarnadóttir, formaður, Sigríður Þorláksdóttir, Efri-
Dálksstöðum, Svalbarðsströnd-, fjehirðir, og Hólmfríðúr
Pjetursdóttir, Arnarvatni, Mývatnssveit, ritari.
'Fundi slitið.
Erindi um uppeldi flutti Halldóra Bjarnadóttir að
kvöldi hins lyrra fundardags. Fjölmentu Húsavíkurkonur
þangað sem á fundinn.
Að loknum fundi efndi ,,K venfjelag Húsavíkur" til
kaffisamdrykkju og hafði þar í boði hjá sjer stjórn S. N.
K. og alla fulltrúa deildanna. Sátu menn þar í góðu yf-
irlæti við ræðuhöld, söng og hljóðfæraslátt langt fram yfir
miðnætti.
Halldóra Bjarnadóttir
fundarstjóri.
Kristbjörg Jónalansdóttir, Þuríður Jónsdóttir
rilarar.
Ferðalag um Norðurland 1919.
Sambandsfundurinn á Húsavík fól mjer að heimsækja
kvenfjelög á Norðurjandi í sumar, í því skyni að gera
þeim kunnar hugsjónir S. N. K., og freista að fá þau