Hlín - 01.01.1919, Qupperneq 26
26
Hlin
sinn, og hefur það oft gefið talsvert í aðra hönd. Síðast-
liðið ár veitti bæjarstjórnin fjelaginu 300 kr. styrk úr
bæjarsjóði. En þetta hefur livergi nærri fullnægt til þess,
að hægt væri að vinna að garðinum eins og æskilegt hefði
verið. — En þrátt fyrir ljeleysið og örðugleikana er garð-
urinn nú orðinn dáfallegur, hin harðgera björk vex óð-
um og rósarunnarnir út við girðinguna dafna vel. Nú
þegar liafa Akureyrarbúar lifað marga nsólskins- og gleði-
dag í hinum unga lystigarði, sem með tímanum verður
yndi og eftiriæti bæjarins.
Á víðsýnasta hólnum í garðinum stendur brjóstlíkan
af skáldinu okkar góða, sem allir unna (sjera Matthíasi).
Þegar árin líða verður það eitt nóg tij að gera garðinn
l'rægan.
Síðastliðið vor kom stjórn Lystigarðsljelagsins sjer sam-
an um, að taka garðyrkjukonu og fela henni aJla umsjón
með garðinum yfir sumarið gegn 400 kr. kaupi. Var valin
til starfsins ungfrú Kristbjörg Jónatansdóttir. Hefur lrún
að öllu Jeyti sjeð um garðinn síðastliðið sumar, og liefur
lionum farið mikið fram undir stjórn lrennar.
31. ágúst síðastliðinn var í fyrsta sinn haldin skemti-
samkoma í garðinum. Er vert að minnast hennar með
nokkrum orðum, ekki einungis vegna þess, að liún gaf
af sjer meira en hinar fyrri, lieldur sjerstaklega sökum
'þess, að í samlrandi við skemtun þessa stóð blóma- og
matjurtasýning, hin fyrsta, sem sögur fara af hjer á landi.
Má liún því teljast merkileg í sögu Lystigarðsins. Sýn-
ing þessi var í Gagnlræðáskólanum. Lánuðu rnargar
konur bæjarins stofublóm sín til sýningarinnar, einnig
sendi Gróðrarstöðin mörg stofublóm og marga gull-
fallega blómvendi, ásamt allmiklu af matjurtum, sem
einnig voru til sýnis.
Því miður var orðið heldur áliðið sumars til að halda
slíka sýningu. — Og þó þar gæfi að líta mörg fögur og
vel hirt stofu- og útilrlóm, þá hefði blómskrúðið orðið
enn fegurra og fjölbreyttara, ef sýningin hefði verið mán-