Hlín - 01.01.1919, Side 46
46
Hlin
í sveitastörfum kvenna, þar með talin garðyrkja.
Þriðja deildin ætti að vera fyrir kennaraefni,
að kaupstaðir og kauptún fái hentuga heimavistar- eða
heimangönguskóla eftir atvikum, og lengri og skemri
námsskeið, sem hægðarleikur er að nota í þjettbýlinu.
Deild fyrir kennaraefni ætti að sjálísögðu að vera í
höfuðstaðnum,
að stofnaður verði einn fullkominn lieimilisiðnaðarskóli
í landinu, er væri sjerstaklega ætlaður kennaraefnum,
og veiti hann fræðslu í öllum greinum íslensks heirn-
ilisiðnaðar.*
Hingað til liafa íslendingar sótt kennaramentun sína í
þessum fræðum til útlanda. F.n við verðum að leggja
alt kapp á, að fá svo góða innlenda kennaramentun, að
hún verði okkur notadrýgri en hin útlenda.
Dugandi kennaraefni og kennarar ættu að sjálfsögðu
að eiga kost á að fara utan og læra meira og sjá fleira
að loknu námi. Utanferðir gæti þá orðið þeim að ómet-
anlegu gagni.
Margt af því, sem hjer er talið, ætti að geta komist í
framkvæmd á næstu árum, og þó sumt eigi máske nokk-
uð langt í land, þá er aldrei of snemma farið að ræða
um það .Við þurfum að ræða unr þessi mál, konurnar
— og rita uin þau — og við verðum að sjá um, að
konur, sem áhuga og þekkingu hafa á fræðslumálum
kvenna, fái sæti í nefndum þeim, sem vafalaust verða
skipaðar til að leggja ráðin á um fyrirkomulag þessara
skóla.
Það má ekki viðgangast á þessum kvenfrelsistímum,
að karlmenn einir fjalli um þau mál, sem konur varða
að mestu, og sém þær vitanlega liafa mikið betri þekk-
ingu á. Vel láta frændur okkar í nágrannalöndunum sjer
lynda að starfa með konum í þannig löguðum nefnd-
* Þá bætir Landsspitalinn væntanlega úr þörfinni meS kenslu í
hjúkrun.