Hlín - 01.01.1919, Qupperneq 76
HÍin
76
Sitt af hverju.
Frá Alþingi.
Samþykt að ríkið taki lán til að byggja Húsmæðraskóla á Norð-
urlandi samkvæmt ltígum nr. 37, 26. okt. 1917.
Frumvarpið um hjónabands- og barnaltíggjöfina varð ekki út-
rætt, bíður Jjví næsta Jtings. Ættu konur að hugsa um þau mál og
ræða, áður en þau koma fyrir næsta Jjing. Ekki hefði verið fjarri,
að konur undirbyggju þetta mál ásamt ktírlum.
Samkvæmt stjórnarskránni verður nú atkvæðisrjettur bæði karla
og kvenna bundinn við 25 ára aldur.
Ljósmæður Islands, (180 að tölu) liafa fengið kjör sín bætt á
Jtessu Jringi. Lægstu laun 200 kr., hæst 2000 kr., auk dýrtiðarupp-
bótar.
Iíennarar hafa sömuleiðis fengið hærri laun. Farkennarar hafa
t. d. 300 kr., lrítt hús og fæði og 88% dýrtíðaruppbót.
Heimilisiðnaðarfjeltígunum eru veittar 5000 kr. á ári með því
skilyrði, að Jrau vinni saman og hafi sameiginlegan framkvæmdar-
stjóra.
Spunavjelar.
Heimilisiðnaðarfjelag Norðurlands hefur samið við Bárð Sigurðs-
son, Htífða við Mývatn, um smíði á 10 spunávjelum. Eftirspurniu
er. mikil. Búist er við, að 25 þráða spunavjel kosti um 500 kr.
Kembingarvjelar.
Þáð er mikill'hugur í mtínnum í vestursýslunum (Húnavatns- og
Skagafjarðars.) að fá sjer kembingarvjelar. Þá koma spunavjelarnar
að fullu gagni.
Prjónavjelar.
Ungfrú Sigríður Jóhannsdóttir frá Skarði í Fnjóskadal fór til
Noregs í haust í því skyni, að kynna sjer prjónavjelaiðnað aí allri
gerð, og hefur lnin í huga að setja á stofn vinnustofu og útstílu á
islenskum prjónaiðnaði að loknu námi og njóta þar að styrks heim-
ilisiðnaðarfjelaganna.
Eiðaskólinn.
Hinn nýi skóli á Eiðum byrjar með vefnaðarnámskeiði. Kennir
J>ar frú Sigrún P. Bltíndal, er nýlega hefur farið utan til þess að
kynna sjer heimilisiðnaðarmálin að nýju.