Hlín - 01.01.1920, Síða 4
4
Hlin
og allir þeir stefndu að einu,
þó aðeins í hillingum, fjarri.
Jeg ætlaði, ætlaði þangað,
en eitthvað á veginum tafði,
uns æskan mín, flugljett sem fuglinn,
var farin og skildi mig eftir.
í leiðslu þá bar mig að brunni,
og bergja jeg vildi sem fleiri,
er lyst sína úr lífæð hans teiga
og logandi þorstanum svala,
en hann var svo hár og svo djúpur,
jeg hafði ekki ráð á þeim veigum,
því krýp jeg við lindina litlu,
er ljómandi kvöldsólin hnígur.
Halln.
Fundargerð S. N. K.
Sambandsfundur norðlenskra kvenna (hinn 7. í röð-
inni) var haldinn á Sauðárkróki 25. og 26. júní sl.
Forstöðukona Sambandsins, Halldóra Bjarnadóttir,
Akureyri, setti fundinn og stýrði honum. Mættir fulltrú-
ar voru:
Frá Skagfirska kvenfjelaginu, Sauðárkróki, Skagaf. . . 2
— Kvenfjelagi Skefilsstaðahrepps, Skagaf............ 1