Hlín - 01.01.1920, Síða 6
6
Hlin
„Sjóðnefnd", og á him að annast um að samin sjc skipulagsskrá
íyrir sjóðinn, sem nú cr að upphtcð................ kr. 19765.59
Tekjur af sölu minningarspjalda ................... — 1932.85
Gjöf frá Kaupfjelagi Eyfirðinga.................... — 10000.00
Samtals kr. 31698.44*
Fje það, er safnaðist. til geislalækninga, kr. 6516.83, helur verið
afhent spítalanefnd Akureyrar, og eru geislalækningar þegar hyrj-
aðar við Sjúkrahús Akureyrar, eins og til stóð.**
Fundur S. N. K. aðhyltist tillögur heilsuhælisnefndar
tun skipun Sjóðnefndar og leggur til, að núverandi stjórn
skipi nefnd þessa, því að fundurínn treystir henni til að
leiða heilsuhælismálið til farsællegra lykta.
Fundurinn leggur til, að skorað sje á allar fjelagsdeildir
S. N. K. að ltafa einn fjársöfnunardag fyrir Heilsuhælið
ár livert.
(B.). Fundurinn vill beina þeirri áskorun til allra
lijúkrunarfjelaga á Norðurlandi, að þau geri sitt ýtrasta
til að styrkja hjúkruríarkonur sínar lil þess að afla sjer
sem bestrar verklegrar og bóklegrar mentunar til undir-
búnings sínu veglega starfi. Ennfremur að fjelögin sjái
þeim, að loknu námi, fyrir svo viðunanlegum launum úr
fjelag's- eða sveitasjóði, að þær sjái sjer fært að halda
* Síðan hefur síifnast:
Erá Ungmennafjelagi Akureyrar: Agóði :d sam-
komu 17. júní 1920 .......................... kr. 3667.43
Frá kvenfjclögum Fram-Eyjafjarðar: Agóði af
skemtun á Grund 11. júlí 1920 ............... — 1535.21
Ágóði af skcmtun í Vaglaskógi 11. júlí 1920 .... — 500.25
Sjóðurinn kr. 37401.33
** Geislalæknjngarnar hyrjuðu um miðjan apríl síðastl. með ein-
um lampa. Það sýndi sig brátt, að einn lampi fullnægði ekki
þörfinni. í byrjun júnímánaðar var því annar lampi fenginn
til viðhótar. Hver lampi kostar á fjórða þúsund krónur. 35 sjúk-
lingar, úr öllum sýslum Norðlendingafjórðungs, hafa notað
geislana þennan tíma. 24 hafa útskrifast, allir mikið frískari,
sumir alhata.