Hlín - 01.01.1920, Qupperneq 13
Hlin
4»
Að dlhlutun Ijelagsins og að nokkru leyti íneð styrk
frá því, fór stúlka hjeðan að nema hjúkrunarfræði og er
nú starfandi hjúkrunarkona hjer í þorpinu.
Auk þessa hefur fjelagið á hverjum vetri liaft sam-
komu fyrir börn í þorpinu.
Iðnsýningu stóð fjelagið fyrir hjer árið 1914.
Á tímabili átti fjelagið mjög örðugt uppdráttar og lá
við sjálft, að það dytti alveg úr sögunni. Áliugi þeirra,
sem fyrst komu fjelagsskapnum á fót, var dofnaður af
margra ára baráttu við fátækt og aðra örðugleika, og
hæfileikinn til að gera ljelagsskapinn aðlaðandi sljóvg-
aður, svo að um tíma bættust engar konur við, og taldi
þá fjelagið örfáa meðlimi, eða var aðeins nafnið tómt.
En á síðustu stundu sáu konur þessa þórps, að við svo
búið mátti ekki standa, og að þessi fjelagsskapur, er svo
margt þarflegt hafði gert, mátti ekki detta úr sögunni.
Tóku því nokkrar konur höndum saman og gengu í
fjelagið og hvöttu aðrar konur til hins sama. Heill sje
þeim! Við það komst nýr andi og líf í fjelagsskapinn, og
hefur fjelagatalan árlega aukist síðan, og hefur fjelagið
nú í ár 76 meðlimi.
Fundi lieldur fjelagið einu sinni í mánuði frá 1. nóv.
til maíloka, og á aðalfundum, sem haldnir eru í febrúar
ár hvert, eru ýmsar skemtanir um hönd hafðar.
Frá Kvenfjelagi Þistilfjarðar.
Fjelagið var stofnað í desember 1915 og hjelt fyrsta
aðalfund sinn i júní 1916. Mynduðu það rúmlega 20
konur og ungar stúlkur. Stofnendur fjelagsins voru lítið
kunnugar starfsemi annara kvenfjelaga, en byrjuðu þó
starf sitt á því sviði, sem kvenfjelögunum virðist eðli-
legast að starfa á.