Hlín - 01.01.1920, Page 14
ILlin
14
Hið fyrsta var tilraun með að hjálpa konu í sveitinni,
sem lá í tæringu, en var afskekt og vantaði hjúkrun og
heimilisvinnu. Henni útvegaði fjelagið stúlku í 10 daga
og lrlynti eftir megni að varúð á heimilinu.
Einni veikri, fátækri konu sendi ljelagið lítils háttar
jólaglaðning, og tveimur konum í sveitinni hefur fje-
lagið hjálpað um vinnu á þann Iiátt, að fjelagskonur haf'a
saumað, prjónað og bætt þeim til hægðarauka.
Námsskeið fyrir unglingsstúlkur Ital'ði fjelagið í hálf-
an mánuð veturinn 1919, sömuleiðis veturinn 1920; til-
sögn veitt aðallega í saumum.
Vorið 1917 og 1920 stofnaði fjelagið til innansveitar-
sýninga á heimaunnum munum. Kom aðallega til sýnis
prjónles og útsaumur.
Fjelagið á nú í sjóði um 200 krónur. Peninga hefur
það aflað með tillögum fjelagskvenna, með skemtisam-
komu, sem fjelagið stofnaði til, með bögglauppboði og
með því, að fjelagskonur hafa unnið saman einn dag að
heyvinnu og lagt ágóðann í fjelagssjóð.
Síðastliðið sumar gekst fjelagið fyrir því, að unnin
voru nokkur dagsverk (12—15) kauplaust hjá konu í
sveitinni, er vantaði fyrirvinnu, sökum þess að maður
hennar liefur nú legið á annað ár í berklaveiki.
Garðyrkjumálið hefur fjelagið að vísu á stefnuskrá
sinni, en hefur ekki, sökum ýmissa örðugleika þessi ár,
enn getað framkvæmt neitt verulegt því til stuðnings.
Fjelagskonur eru nú um 20.
L. P.