Hlín - 01.01.1920, Page 15

Hlín - 01.01.1920, Page 15
H lin 15 Heilbrigðismál. Berklamálið. Á síðustu árunum liefur mikið verið rætt og ritað um heilsuhæli lijer norðanlands, og nú mun öllum almenn- ingi vera orðið ljóst, hversu mikil nauðsyn er að fá því máli framgengt. Hafa blöðin hjer flutt margar greinar um málið frá ýmsum hliðum, og snemma á árinu var gefinn út bæklingur, er Steingrímur lijeraðslæknir Matt- híasson hefur ritað; er þar ágætt yfirlit yfir ástandið hjer nyrðra og sýnt fram á með skýrum rökum, að við svo búið má ekki standa. Stúdentaljelagið á Akureyri hafði málið til umræðu á fundi í fyrravetur og samkvæmt fund- arsamþykt þeirri, sem þar var gerð, var leitað álits allra lækna norðan- og austanlands um málið; svör þeirra, er öll hneigðust í þá átt, að nauðsyn væri á nýjn hæli, voru svo send milliþinganefndinni í berklamálinu. Um sama leyti mæltist milliþinganefndin til þess, að hún fengi sem allra ýtarlegastar upplýsingar um útbreiðslu berkla- veikinnar í Eyjafirði, og sömuleiðis að gerð væri túber- kúlínrannsókn á öllum skólabörnum á Akureyri. Má af: því marka, að milliþinganefndin hefur sjerstaklega tekið óskir Norðlendinga til athugunar, þó að enginn viti enn þá, livað hún telur sjer fært að fara fram á við þingið, þegar til nefndarálits kemur; en af því að nefndin er skipuð gáfuðum oggætnum mönnum, höfum við ástæðu til að vona ltins besta. Margir hafa orðið til að gela til hælisins á síðasta ári, en betur má, ef duga skal; sjóðurinn er enn ekki orðinn meira en rúm 40 þúsund krónur, og eins og nú árar, hrekkur það fje skamt, þegar til byggingar kemur. Þrátt fyrir alla bjartsýni nnin íjestum vera það Ijóst, að samskot

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.