Hlín - 01.01.1920, Qupperneq 15
H lin
15
Heilbrigðismál.
Berklamálið.
Á síðustu árunum liefur mikið verið rætt og ritað um
heilsuhæli lijer norðanlands, og nú mun öllum almenn-
ingi vera orðið ljóst, hversu mikil nauðsyn er að fá því
máli framgengt. Hafa blöðin hjer flutt margar greinar
um málið frá ýmsum hliðum, og snemma á árinu var
gefinn út bæklingur, er Steingrímur lijeraðslæknir Matt-
híasson hefur ritað; er þar ágætt yfirlit yfir ástandið hjer
nyrðra og sýnt fram á með skýrum rökum, að við svo
búið má ekki standa. Stúdentaljelagið á Akureyri hafði
málið til umræðu á fundi í fyrravetur og samkvæmt fund-
arsamþykt þeirri, sem þar var gerð, var leitað álits allra
lækna norðan- og austanlands um málið; svör þeirra, er
öll hneigðust í þá átt, að nauðsyn væri á nýjn hæli, voru
svo send milliþinganefndinni í berklamálinu. Um sama
leyti mæltist milliþinganefndin til þess, að hún fengi
sem allra ýtarlegastar upplýsingar um útbreiðslu berkla-
veikinnar í Eyjafirði, og sömuleiðis að gerð væri túber-
kúlínrannsókn á öllum skólabörnum á Akureyri. Má af:
því marka, að milliþinganefndin hefur sjerstaklega tekið
óskir Norðlendinga til athugunar, þó að enginn viti enn
þá, livað hún telur sjer fært að fara fram á við þingið,
þegar til nefndarálits kemur; en af því að nefndin er
skipuð gáfuðum oggætnum mönnum, höfum við ástæðu
til að vona ltins besta.
Margir hafa orðið til að gela til hælisins á síðasta ári,
en betur má, ef duga skal; sjóðurinn er enn ekki orðinn
meira en rúm 40 þúsund krónur, og eins og nú árar,
hrekkur það fje skamt, þegar til byggingar kemur. Þrátt
fyrir alla bjartsýni nnin íjestum vera það Ijóst, að samskot