Hlín - 01.01.1920, Page 16

Hlín - 01.01.1920, Page 16
16 HÍin ein koma hælinu aldrei upp, en þau eru jafn sjálfsögð fyrir það, þó að ríkissjóður legði fram alla fúlguna til byggingarinnar og fram yfir það; sjóðurinn gæti orðið hælinu til ómetanlegs gagns, þegar farið væri að reka það, og ætti að einhverju leyti að verða hjálparhella fá- tækra sjúklinga. Langmerkustu tíðindin af berklamálinu lijer norðan- lands tel jeg þau, að nú er komin ljóslækningastofa í sambandi við sjúkrahúsið á Akureyri. Þá miklu framför má langmest þakka ötulleika og dugnaði Steingr. Matt- híassonar hjeraðslæknis, sem eins í þessu sem öðru hef- ur unnið dyggilega að berklamálinu. Snemma á árinu var komið á raflýsingu í sjúkrahúsinu, og mn leið lagði Samband norðlenskra kvenna fram fje það, sem safnast liafði til fyrirhugaðrar ljóslækningastofu, til þess að hægt væri sem fyrst að kaupa lampa og önnur áhöld til stof- unnar. Ennfremur lögðu ýmsir einstakir menn Iram töluvert fje til viðbótar því, sem konurnar gáfu. Ljós- lækningarnar byrjuðu í aprílmánuði, og hingað til hafa 35 sjúklingar verið geislaðir; meiri hlutinn hefur fengið góðan og bráðan bata, sumum batnað liægt, en yfirleitt er óhæ'tt að segja, að árangurinn liafi verið eins góður hjer eins og tíðkast annarstaðar. Vegna þess að jeg hefi orðið var við, að margir lialda að geislar þeir, sem komnir eru, sjeu Röntgens-geislar og að við þá megi taka ljósmyndir o. s. frv., þá vil jeg taka það l'ram, að svo er ekki, lieldur eru þetta svokallaðir kvikasiljur-kvars- geislar, sem svo að segja eingöngu er notaðir til lækninga á berklum utan lungna; á lungnaberkla hafa þeir enga verulega verkun. En það er von á Röntgens-geislatækj- um innan skamms. Á öllum sviðum miðar berklamálinu áfram, og það er varla von, að það taki nein stórstökk, þegar tekið er til- lit til undirbúningskostnaðar, og ekki síst peningakrepp- unnar, sem við eigum við að búa; og þó að alt gengi

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.