Hlín - 01.01.1920, Side 18

Hlín - 01.01.1920, Side 18
18 Hlin og líkamlegt tjón af slæmum húsakynnum. Sálarstyrk- leiki konunnar er öllu frernur en mannsins bundinn við heimilishamingjuna, en heimilishamingjunnar versti fjandi eru slæm húsakynni. Við eigum engar skýrslur enn hjer á landi, er sýna, hver áhrif híbýlin hafa á heilsufar þjóðarinnar, andlegan og líkamlegan vöxt hennar og viðgang. En úti í lönd- unum, þar sem áhuginn er vaknaður fyrir jDessu máli, Jrar er safnað skýrslum, sem hljóta að vekja eftirtekt hvers hugsandi manns.# Tökum fyrst börnin; Jrau eru veikbygð og ósjálfbjarga frá náttúrunnar hendi, en á -þeim hvílir okkar framtíð og lífsgleði. Hvert barn er þjóðinni dýrmæt gjöf, iivert einasta barn dásamleg eign fyrir þjóðfélagið, sem Guð fær því til vaxtar og viðhalds. Hvernig Jrjóðirnar fara með þessa dýrmætu eign sína sjest best af eftirfarandi töflu; Barnadauði af hverju 1000 Birmingham ............................... 111 Hartlepool ................................ 104 London ................................... 101 Hampstead, sveitabær við London............ 35 Bourneville, sveitabær við Birmingham ... 35 Letchworth, sveitabær við London............ 30 Þessu lík er niðurstaðan allstaðar þar, sem rannsakað hefur verið. Hver verður hjer harðast úti? Það eru mæðurnar, sem hafa alið börnin við brjóst sín og hjörtu með gleði og * Þegar enskar konur i fyrsta skifti tóku þátt í kosningunum sem fullgildir borgarar haustið 1918, lögðu þær híbýlamálið hvar- vetna til grundvallar. Mrs. Lloyd George, sem að því er sýnist er skörungur eins og maður hennar, liafði að kjöryrði í kosn- ingarleiðangri sínum: „Hver fjölskylda á að hafa hús út af fyrir sig, og það gott hús." Margar enskar konur stunda nú bygginga- fræði, Málið fer sigurför um landið, •

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.