Hlín - 01.01.1920, Page 20

Hlín - 01.01.1920, Page 20
20 Hlín því ánægjunnar í götulífinu og í skemtununum, og sekk- ur þar, því miður, margt til ltotns innan skamms. Lítum yfir þessar tölur: íbúatala í húsi Óskilgetin börn London 8 4 Stavanger 10 5 Bergen 1 (5 8 Þrándheimur 17 14 Berlín ■52 16 Kristjanía 36 17 París 36 20 Hvar verður okkar licifuðstaður í röðinni? Karlmaðurinn, sem táldregur ungu stúlkuna, ber höf- uðið hátt; hann heldur áfram vinnu sinni og skemtun- um. Stúlkan situr eftir með þrautirnar og óvirðinguna. Líf liennar er eyðilagt. Hjer um bil alls staðar og ævinlega er henni sparkað út. Það er enn á ný sorgarsaga kon- unnar; það er enn ein sönnun þess, að híbýlamálið á að verða áhugamál allra kvenna. Við skulum að síðustu athuga nokkuð dauðsföllin af völdum tæringarinnar í sambandi við híbýlamálið. Robert Koch, hinn frægi læknir, sem fann tæringar- sóttkveikjuna, sagði í fyrirlestri, er hann hjelt stuttu fyrir dauða sinn: „Eina vonin um að yfirvinna tæringuna eru gagngerðar endurbætur á híbýlunum." Þar sem illa er Jiýst, segja skýrslurnar, eru dauðsföllin af völdum tær- ingarinnar miklum mun fleiri en þar sem bjart er, rúmt og loftgott. Við Akureyringar, sem búum við hin ystu höf, við háfjallaloft og mikla sumarsól, við verðum einna verst úti af öllum landsmönnum af völdum hvíta dauðans. Ætli híbýli okkar eigi ekki einhvern þátt i því? Frægur læknir hefur sagt: „Þegar jeg sje ungan mann eða konu smituð af tæringu, geri jeg ósjálfrátt krossmark fyrir mjer, því að jeg veit, að þetta ungmenni er saklaus

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.