Hlín - 01.01.1920, Side 40

Hlín - 01.01.1920, Side 40
40 Hlin Konurnar hafa á öllum öldum verið bjargvættir garð- yrkjunnar. Konan er bundin við heimilið; henni er joað sjerstaklega mikið áhugamál að prýða jiað úti og inni; henni er umhugað um að drýgja matinn og gera hann tilbreytingameiri með matjurtum, ávöxtum og berjum; henni lætur vel að hlúa að veikum og vanmáttkum plönt- um ,hirða jjær og næra, og hún er þolgóð og þrautseig, j)ótt ekki gangi alt að óskum. Sjerfræðsla í garðyrkju er á síðari tímum fáanleg í öll- um löndum; í fullkomnum garðyrkjuskólum með ára- löngu námi, á skemri og lengri námsskeiðum og á öllurn alþýðuskólum til sveita. Fjöldi fólks, konur og karlar, stunda garðyrkjunám, og gera það að 1 ífsstaríi sínu. Sumir eiga stór svæði í eða utanvert við bæina, rækta Jrar matjurtir og blóm í stórum stíl og selja almenningi; aðrir fara um landið, leiðbeina og liðsinna með ráðum og dáð um alt, er að ræktun lýtur, gróðursetja jneð hjálp allra skólabarna landsins þúsundir skógartrjáa árlega; aðrir hirða um garða stóreignamann- anna víðs vegar um landið, eða um kirkjugarðana, sent jtar eru sannkallaðir skrúðgarðar; enn aðrir græða upp óræktarsvæði og klæða á þann hátt landið. Það má með sanni segja, að garðyrkjan og trjáræktin sje í heiðri liöfð í þessum löndum, sem jx') frá okkar sjónarmiði, eru skóg- um og gróðri vaíin; jrað er líka ein af listum garðyrkj- unnar, að hafa hemil á gróðrinum. Sá Jrykir ekki maður með mönnum Jrar í sveit, sem ekki hefur garð við bæ sinn, og það vel hirtan garð, Jrótt lítill sje; að öðrum kosti er hann verri en enginn og til skammar pg skap- raunar eigandanum. Þær borgir eru þar heldur ekki taldar á marga fiska, sem ekki eiga trjágarða með göng- urn og blómaskrúði, til yndis og ánægju, hressingar og heilsubótar íbúunum.* * Jeg var fyrir nokkruni árum stödd í Stafangri í Noregi. Varð mjer ásamt vinkonu minni, sent þarna er borin og barnfædd,

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.