Hlín - 01.01.1920, Side 52

Hlín - 01.01.1920, Side 52
52 Hlin það er uppalið í, að það verði þá sem iis fyrir vindi og viti ekkert hverju það á að trúa, ef það þá annars vill hafa nokkra trú. Það er ekki eingöngu prestunum að kenna, að kirkjurækni liefur víðast lagst niður, það er tóinlæti safnaðanna á trúmálunum og þar af leiðandi samúðarleysi við prestinn sinn, sem hefur gjört það að verkum, að svona er komið. Leikmenn, sem hnýta í prest,- inn sinn fyrir áhrifaleysi í kirkjunni, ættu sannarlega að stinga liendinni í sinn eigin barm og minnast þess, hve mikinn þátt þeir sjálfir geta átt í því að gera guðsþjón- ustuna aðlaðandi, með því að hafa sönginn í kirkjunni sinni góðan. Guðrún Sigurðardóttir Lindal. Jeg vil þekkja prestinn minn. Það þykir líklega skrítinn formáli þetta, eins og öllum sje ekki í lófa lagið að þekkja prest, sem maður sjer og heyrir af prjedikunarstóli ár eftir ár. Getur verið, en mjer er það ekki nóg, jeg vil þekkja hann persónulega, eiga hann fyrir vin, sem jeg get trúað fyrir mínum helgustu hugsunum. Jeg var nýlega að lesa í Prestafjelagsritinu nýja, meðal annars erindi flutt á synodus af sjera Bjarna dómkirkju- presti: „Hvernig verðum við betri prpstar?“ — Það leyn- ir sjer ekki, að allir hafa prestarnir mikinn áhuga á sínu háleita starfi. Sjera Bjarni setur fram nokkrar spurningar, meðal annara þessa: „Hvemig á að bæta safnaðarlíf?" Jeg veit nú naumast, hvort jeg Iief leyfi til að leggja orð til, þegar um svona mikið stórmál er að ræða. En enginn nefnir það, sem jeg held að hefði stórmikla þýð-

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.