Hlín - 01.01.1920, Page 53

Hlín - 01.01.1920, Page 53
Hlin 53 ingu, þegar um sambandið milli prests og safnaðar er að ræða. Jeg hef oft óskað að geta kynst prestunum, sem jeg hef átt, en því miður ekki átt kost á að hafa nánari kynni, nema af tveimur þeirra. En mjer hefur reynst sú þekking afar ntikils verð, bæði mjer til ánægju og and- legrar uppbyggingar. Ef nánara persónulegt samband og kunnugleiki ætti sjer stað milli prestanna og safnaða þeirra, gæti það má- ske orðið prestunum til gagns líka, þeir eru oft einmana í starfi sínu og þrá samúð. Brauðasamsteypan hefur fjar- lægt prestana og söfnuðina, og er það ilt. Jeg var ekki nema sjö ára, þegar jeg man fyrst eftir presti. Móðir mín sagði okkur krökkunum að fara inn og heilsa prestinum, hann væri kominn að húsvitja. Jeg býst við að jeg hafi ekki verið mjög upplitsdjörf. En þeg- ar presturinn rjetti mjer blíðlega hendina og tók mig á knje sjer, þá hvarf mjer öll feimni og jeg gat masað við liann um alla heima og geima. Því næst byrjaði yfir- heyrslan. Hann hefur víst ekki verið mjög kröfuharður, því mesta hrós fjekk jeg fyrir að kunna að lesa og fyrir fræðin í kverinu mínu. Hann kom oft til foreldra minna og átti tal við þau um lífið frá ýmsum hliðum, um trú- arbrögðin og margt fleira, sem mjer fanst í hæsta máta guðfræði. Auðvitað var jeg barn, sem bar lítið skynbragð á þá hluti. — Ekki þótti presturinn okkar mikill ræðu- maður, og jeg held, að hann hafi notið sín betur í lágu baðstofunni hjá foreldrum mínum en í prjedikunarstóln- um. Hann var gáfumaður, en þótti undarlegur, sumir kölluðu hann ofvita, en þeir sem þektu hann vel, vissu, að hann bar í brjósti göfugt og guðelskandi hjarta. En því miður naut jeg hans ekki lengi, jeg var aðeins 11 ára, þegar hann fór burtu, og jeg grjet, þegar hann kom að kveðja. Svo var prestlaust um tíma. En livað það var tómlegt. Þó að jeg væri barn, þá held jeg næstum, að jeg hafi fundið, að mig vantaði andlegan leiðtoga. Hjeraðsprófasturinn þjónaði brauðinu meðan prestlaust

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.