Hlín - 01.01.1920, Page 67

Hlín - 01.01.1920, Page 67
lllín 07 inum stórgagn. Þegar liann skrifaði, var hann viðkvæmur, ör og heitur, skrifaði með hjartablóði sínu, lil'ði með mönnurn og málleysingjum, dró taum lítilmagnans, allra þeirra, sem verða úti í stórhríðum mannlífsins. — Húsin geyma hugsanir hans. Það er eins og andi lians ríki alls staðar, bæði úti og inni. Þess vegna er sárt að yfirgela það. Vita ókunnuga koma í staðinn, sem líta smáum augunr á alt. Hafa ekki hugmynd um, eða skilja ekki, hvað þar var hugsað, skrilað og dreymt, bera ekki lotn- ingu lyrir neinu, vita ekki og vilja ekki skilja, að þeir, sem bjuggu næst á undan þeim, voru rifnir upp með rótum Irá öllu því, sem þeir áttu kærast og var þeim dýr- mætast og kastað út í hringiðuna, óvíst hvar þá bæri að landi, heimilislausir vegfarendur, sem gleymast og hverfa, meðan aðrir byggja starl' sitt á þeirra grundvelli. Efnamennirnir hreiðra sig á gulldyngjunum, og eru hafðir í hávegum auðsins vegna, þó að þeir liali aldrei verið snortnir guðlegum eldmóði, eðá skygnst inn í leynd- ardóma mannlífsins. Nú horfi jeg ef til vill í síðasta sinni, yfir hjeraðið. Stend í seinasta sinni á Miðaftanshnjúk; þess vegna vil jeg festa myndina, sem fyrir augun ber, vandlega í huga mínum. Jeg horfi og stari, þangað til augun eru orðin þreytt, og hugsa og brýt heilann, þangað til hugurinn er orðinn uppgefinn. Nú er komið að sólarlagi, jeg verð að hverfa hjeðan — og fara heim — jeg heim! Nei, jeg á hvergi heima. ()! að jeg fengi að leysast upp í eina þrá, eina lmgsun, þá, að fá að hverla til fulls og alls í kvöldroðann — geisladýrðina. F.n þá gagntekur sú hugsun mig, að þó að hann með gráu lokkana og sí-unga hugann sje horfinn sýnum, þá geti menn þó ekki þurkað nafn hans út, það verði altaf tengt og bundið þessum stöðvum. Það er huggun harmi gegn. — Sólin er hnigin til viðar. Fnrfugl. 5*

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.