Hlín - 01.01.1920, Síða 70

Hlín - 01.01.1920, Síða 70
70 Hlin liaíði snjóhvítt, fallegt liár, var lotin í herðum og'að hún var altai: að prjóna. Jeg minnist þess einnig, að þégar hún hafði sagt okkur sögu, þá lagði hún lófann á koll- inn á mjer og sagði: „Þetta er eins satt og við sitjum hjerna." Jeg man, að hún söng stundum kvæði fyrir okkur. Eitt af kvæðum hennar var um riddara og haf- meyju, og viðkvæðið var: „Yfir vatnið æða kaldir vind- ar.“ Eitt man jeg enn: hún kendi mjer stutta bæn og eitt vers. Jeg hef mjög óljósa endurminningu um sögurnar, sem amma sagði mjer. Það er aðeins ein, sem jeg man svo vel, að jeg get sagt hana aftur. Það er stutt frásögn um fæðingu Jesú. Jeg get ekki ril jað upp fleira um ömmu mína; best man jeg, ltve jeg saknaði liennar sárt, þegar hún var dáin, þegar legubekkurinn hennar stóð auður í fyrsta sinn. Jeg gleynti því aldrei, hve mjer fanst dag- urinn vera ógurlega lengi að líða. Við börnin vorum látin koma að rúmi ömmu og kyssa á hönd hennar. Við þorðum Jtað varla fyrst, en þá sagði einhver, að Jtetta væri í síðasta sinn, sem við gætum Jtakkað ömrnu fyrir allar sögurnar, sem hún hefði sagt okkur. Mjer fanst öllum kvæðunum og ævintyrunum vera ekið burtu í svörtu kistunni löngu, og að þau •kærnu aldrei aftur. Mjer fanst, sem eitthvað væri numið burt úr lífi mínu, það var því líkast, sem dyrunum að yndis- lega fagurri töfrahöll hefði skyndilega verið lokað, og enginn var sá, er hafði lykilinn að Jteim dyrum. Jeg man, að við börnin vöndumst smám saman á að leika okkur að brúðum og leikföngum, eins og önnur börn. Það leii út fyrir, að söknuðurinn eftir ömniti væri horfinn, eða að við hefðum gleymt henni. En er jeg sit hjer, 40 árum síðar og salna frásögum um Krist, sem jeg heyrði í Aust- urlöndum, man jeg alt í einu eftir litlu sögunni, sem amma sagði mjer svo oft, og mig langar til að segja hana enn, og láta hana verða með í safninu. Það var á jóladaginn. Alíir voru farnir til kirkjú, nema amma og jeg. Jeg held, að við höfum verið einar í hús-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Hlín

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.