Hlín - 01.01.1938, Blaðsíða 26
24
Hlln
hirðingu skóganna og eftirlit. — í Manitoba-fylki
einu saman eru t. d. margir turnar bygðir til og frá um
fylkið, þar sem vörður er haldinn nótt og dag vegna
skógareldanna og flugvjelar í lofti til að vakta skógana.
Það sem einna mest vekur eftirtekt manns, þegar
vestur kemur, er hve fljótt og vel menn komast úr
einum stað á annan í þessu stóra landi. — Maður verð-
ur ekki svo mjög var við fjarlægðirnar, sem auðvitað
eru mjög miklar á Norðurálfu-mælikvarða. — Það
má heita, að fólkið sje alveg hætt að ganga, enda
mundu þá fjarlægðimar fyrst verulega koma í ljós, ef
leggja ætti land undir fót. — Bifreiðar og járnbrautir
eru þau einu farartæki, sem eru nógu hraðfara, þar
sem þessar miklu fjarlægðir eru annarsvegar. — Það
er fullyrt, að allir Bandaríkjamenn gætu ekið af stað
í bíl samtímis ef þeir vildu, og þyrftu þó ekki að vera
nema 4—5 menn í hverjum bíl. — íbúarnir eru 130
milljónir, en bílarnir um 30 milljónir, auk flutnings-
bíla. — í Canada aftur á móti, þar sem íólkstalan er
um 10 milljónir, þurfa að vera 7—8 manns um hvern
bíl. — Vegirnir eru góðir, víðast hvar steinsteyptar,
breiðar brautir, enda er þar oft sprett úr spori. í bíl
er farið hraðara en á almennum járnbautum, sem hafa
marga áfangastaði. Með bíla- og bensínskatti er veg-
unum haldið í ágætu standi. — Alt vilja menn til vinna
að komast áfram fljótt og vel. — Öll umferð lýtur
'föstum lögum og þess stranglega gætt að þeim sje
fyigt.
Allir ferðast, ungir og gamlir, allir eiga bíl sem
mögulega geta, til þess að mega sjálfir ráða ferðum
sínum að öllu leyti, en alt er gert, bæði af því opin-
bera og með einkaframtaki, til að hjálpa fólki til að
ferðast og njóta þæginda og hvíldar. — Ókeypis bað-
staðir eru fyrir börn og fullorðna, fjöldi af fögrum trjá-