Hlín - 01.01.1938, Blaðsíða 68
66
Hlín
Þær frjettir um vinnubrögð til og frá á landinu, sem
„Hlín“ hefur verið sent til birtingar, sýna það ljóslega,
að margt og mikið er unnið. — Renna margar stoðir
undir þessar framkvæmdir.
Ríkissjóður. — Þótt oftlega sje á það minst, að Al-
þingi skeri æði mikið við neglur sjer styrkinn til heim-
ilisiðnaðarins, og að æskilegt væri að þar væri rífleg-
ar skamtað, þá er það ekki svo lítil upphæð, sem geng-
ur til þessara hluta óbeinlínis, samt sem áður, úr rík-
issjóði, og óvíst að önnur lönd geri þar betur.
Það sem einna mest og best hefur stutt heimavinn-
una, tóvinnuna, hin síðari ár er, að Alþingi tók upp
þann góða sið að styrkja fólk til verkfærakaupa,
(prjónavjelar, vefstóla og þau áhöld, sem þeim fylgja,
og spunavjelar, alt að Ys kaupverðs). Þetta hefur ver-
ið mjög vinsælt og komið sjer vel í mörgum tilfellum,
aukið stórum vefnað og vjelprjón, og spunavjelarnar
hafa gert mönnum fært að spinna ullina til fatnaðar.
Skólar og sýningar. — í skólum landsins eykst kensla
í handavinnu af ýmsu tagi ár frá ári. og eftir öllum
sólarmerkjum að dæma, mun sú alda nú vera að ganga
yfir landið að auka handavinnuna allsstaðar í skólun-
um og gera hana sem hagfeldasta. Húsmæðra- og
kvennaskólarnir hafa sjerstaklega mikil áhrif um bætt-
an smekk og endurbætur á ýmsum vinnubrögðum, á
það ekki síst við um vefnaðinn , sem eykst stórum i
landinu á seinni árum. (Vonandi má líka eitthvað
þakka það vefnaðarbókinni, sem árlega fylgir „Hlín“,
og sem fer í þúsundum eintaka víðsvegar um landið).
Skólarnir eiga upptökin að því að nota allskonar
vefnað og íslenskan útsaum til búnaðar í skólunum
sjálfum. — Sjón er jafnan sögu ríkari. — Með smekk-
vísi og prýði er þar sýnt og sannað, að íslensk vinna,
íslenskt efni og íslenskar gerðir eru nothæft í hin
prýðilegustu húsakynni.