Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1930, Qupperneq 2
ÚTVARPSÁRBÓK
Þrjú heimsfræg firmu:
„COSSOR“. — „Cossor“-verksmiðjan i London
framleiðir hin frœgu 2 og 3 lampa „Melody Mak-
er“-viðtæki, sem notuð eru tækja mest á Bret-
landseyjum. „Cossor“-lampar hafa nýlega verið
endurbættir svo stórkostlega, að flest tæki gefa
25% meira afkast með þeim en öðrum lömpum. —
Ef þér notið rafgeymi, ættuð þér að ltaupa „Coss-
or“ 2 volta lampa. Þeir spara hleðslur á rafgeym-
inum um helming.
„BROWN“. -—■ Flestir útvarpsnotendur vita, að
„Bro\vns“ gellar (hátalarar) taka langt fram öll-
um öðrum gellum, sem heimsmarkaðurinn hefir á
hoðstólum. Sá, sem eigi hefir lieyrt útvarp á
„Brown“-gelli, hefir tæplega hugmynd um, hve út-
varp getur verið hljömfagurt og „eðlilegt“. Um
allan heim er það hiklaust viðurkent, að „Browns“-
gellar, 2 og 3 lampa viðtæki og radio-grammófón-
ar eru hin vönduðustu tæki, sem fáanleg eru.
„MENDE“. — „Mende“ 3, 4 og 5-lampa tæki
eru einnig fremst í flokki vandaðra og langdræg-
ustu viðtækja, enda þótt þau séu ódýrust eftir
gæðum. Þau má, eins og „Cossor“ og „Brown“,
tengja beint við bæjarrafmagnið, eða við rafvaka,
eftir ástæðum. Ef þér viljið eignast smekklegt og
endingargott tælci, án þess að borga ca. 100—250
kr. of mikið fyrir það, ættuð þér að leita nánari
fregna um „Mende“.
3-lampa tækin verða heppilegust og ódýrust í
notkun fyrir nýju útvarpsstöðina. Og á þau heyr-
ist einnig erlent útvarp. 4 og 5 lampa tækin eru
lianda þeim, sem heyra vilja flestar stöðvar Ev-
rópu og til Ameríku.
Við erum ávalt reiðubúnir að gefa nánari upp-
lýsingar um tækjaval, uppsetningu tækja o. s. frv.
— Látið okkur vita, hvort rafmagn er á heimili
yðar, jafnstraumur eða víxlstraumur, hve mörg
volt spennan, og hvort vatnsleiðsla er í húsinu.
Myndaverðskrár sendar ókeypis.
Radioverslun íslands,
Reykjavík. — Pósthólf 233.
Fyrirspurnum svarur Jón Gunnarsson. Sími: 1400.