Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1930, Blaðsíða 31
ÚTVARPSÁRBÓK
29
að vænta, að J. Þ. eigi einnig nægilega lipurð og
prúðmennsku i livivetna til þess að hæfileikar hans
og dugnaður megi njóla sín eigi síður til friðsam-
legra starfa en til baráttu.
Af því að sumir virðast kviða þvi, að útvarps-
stjórinn muni reynast hlutdrægur i stöðu sinni og
draga um of taum þeirrar stefnu i þjóðmálum, sem
hann hefir áður l)orið merki fyrir, þykir rétt að
benda á það, að slíkt er cigi síður á valdi og ábyrgð
útvarpsráðs en útvarpsstjóra. En skipun útvarps-
ráðsins er einmitt hagað þannig, að það verði jafn-
an sem víðsýnast en hlutlausast. Annars væri það
mikill misskilningur, að vilja útilolca umræður um
þjóðmál frá starfsemi útvarpsins. Islendingar hafa
almennt svo mikinn áhuga fyrir stjórnmálum, að
rökræður um þau mundu kærkomnar.
Hvorki Jónas Þorbergsson eða þeir aðrir, sem
um starfið sóttu og komið gátu til greina, hafa
liaft tækifæri til þess að sýna nokkra sérstaka
hæfileika i þá átt, að stjórna útvarpi. Reynslan
verður að skera úr því, hvernig valið hefir tékist.
En að óreyndu er ekki ástæða til annars en að
óska útvarpstsjóranum þess, að honum megi auðn-
ast að rækja liið ábyrgðarmikla starf sitt til lieilla
þjóðinni og sjálfum sér lil sóma.