Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1930, Side 44
42
ÚTVARPSÁRBÓK
1 Austurríki liafa meðal annars verið sendar inn
á heimilin ýmsar barnabókmenntir. Aðferðin við að
taka myndirnar er ekki talin vandameiri en að spila
á grammófón. Áhaldi er stungið inn í viðtakið og
pappírsörk, vættri i vatni, vafið um málm sívalning.
Eftir 31/2 mínútu er skýr og falleg mynd komin á
blaðið. Börnin í Austurriki bafa fengið þessa mynda-
sendingu daglega kl. 6 síðdegis og bíða hennar með
óþreyju. Oft fá þau samanhangandi sögu, ofurlítinn
kafla á liverjum degi, og mynd með til skýringar.
Þau halda þessu saman og eftir nokkra daga er kom-
in ofurlítil bók.
Sé vel vandað til þess, sem jþannig berst inn á sjálf
heimilin, geta áhrif þess á eldri sem yngri orðið dýr-
mætari en svo, að þau verði virt til fjár; því að alt-
af verður lieimilið þýðingarmest allra stofnana, ])ar
er venjulega sáð fræjum, sem bera æfilangan ávöxt,
og er ekki lílið undir því komið hverrar legundar
þau eru.
í Bandaríkjum Norður-Ameriku hefir nolkun út-
varps óðfluga breiðst út.
í bloðum frá Cincinnati í Ohio ríki var þess get-
ið á síðastliðnu vori, að foreldrar barnanna þar hefðu
ekki þurft að spyrja, livað þau hefðu lært, þegar
heim kom úr skólanum. Ástæðan var sú, að feður
og einkum mæður höfðu með hjálp útvarps, tekið
þátt í sömu kennslustundunum og börnin þeirra.
Þá urðu að sjálfsögðu umræður um námsefnið á
heimilinu.
Skólaráð rikisins sá um útvarp á hverjum fimtu-
degi og föstudegi kl. 1 y2—2V2. Var það merkileg til-
raun. Áætlað var að 200,000 skólabörn og þúsundir