Valsblaðið - 01.05.2004, Síða 35
Ungir Valsarar
Bergdís Bjarnadótlir leikur knattspyrnu með 3. flokki
Bergdís er 15 ára og hefur æft fótbolta
síðan hún var 8 ára og það kom ekkert
annað lið til greina, systkini hennar voru
í Val og hún á heima í Valshverfmu. Hún
hlaut í haust fyrst kvenna Friðriksbikar-
inn sem er ný viðurkenning á uppskeru-
hátíð knattspyrnudeildar.
- Hvaða hvatningu og stuðning hef-
ur þú fengið frá foreldrum þínum í
sambandi við fótboltann, hversu mik-
ilvægur er stuðningur foreldra?
„Foreldrar mínir hafa stutt mig mikið
síðan ég byrjaði og finnst mér það vera
mjög mikilvægt því ef stuðningurinn er
mikill þá langar mann meira til að standa
sig vel.“
- Hvernig gekk ykkur í sumar?
„I sumar fórum við á Gothia Cup og
gekk okkur ekki vel en ferðin var frábær.
Svo komum við heim og unnum Rey
Cup og Haustmótið en lentum í 3. sæti á
Islandsmótinu."
- Segðu frá skemmtilegum atvikum
úr boltanum.
„Ég man einu sínni þegar ég var að
keppa á Nóatúnsmótinu í 5. flokki, ég
tók innkast, svo llautaði dómarinn og ég
vissi ekkert hvað hann var að pæla en þá
hafði ég tekið innkastið á víta-
tegslínunni og langaði mig helst að
hlaupa út af vellinum."
- Áttu þér fyrirmyndir í fótboltan-
um?
„Já, þær sem eru núna í meistaraflokki
kvenna í Val og Eiður Smári.“
- Hvað þarf til að ná langt í fótbolta
eða íþróttum atmennt?
„Ég held að maður þurfi m.a. að hafa
mikinn vilja, sjálfstraust, og trú á sjálfum
sér. Ég þarf helst að bæta hjá mér sjálfs-
traustið, vinstri fótinn og mataræðið.“
- Hvers vegna fótbolti?
„Ég ákvað að prófa að æfa, fannst það
skemmtilegt og hélt áfram og ég hef ekki
æft neinar aðrar greinar."
Valsblaðið 2004
-Hverjir eru þínir framtíðardraum- kenningu fyrir frammistöðu sína í íþrótt-
ar í fótbolta og lífinu?
„Að ná langt í hvorutveggja og draum-
ur væri að komast í landsliðið."
- Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig
að hafa fengið Friðriksbikar-
inn, fyrst stúlkna nú
í haust?
„Það er
alltaf gam-
an að fá
viður-
um en ég veit ekki mikið um séra Friðrik
nema að hann stofnaði Val 11. mai 1911
og er mikilvægur fyrir sögu félagsins."
A
/l> *
/ó'ÍJl it í
V*** •• v'
=5 =: ÍSL-
^ I Bergdís Bjarnadóttir með Frið-
‘‘ \\\ riksbikarinn og móður sinni
. x Sigurveigu Ingólfsóttur sér við
• . Itlið.
I