Valsblaðið - 01.05.2004, Qupperneq 38
Willum Þóp Þórsson er ón efa einn metnaðapgjapnasti þjálfapi landsins en hann
hefup fengið það hlutverk aó homa Val aftur á flug
Willum og Asa Brynjólfsdóttir og börnin
björg eins og hálfs árs og Willum 6 ára.
Willum Þór Þórsson, einn af traustustu
og mesta áberandi leikmönnum KR á ní-
unda áratugnum, er nýráðinn þjálfari
meistaraflokks Vals í knattspymu. Þrátt
fyrir að hafa blómstrað sem knattspymu-
maður er hann einn fárra íþróttamanna
sem lék með yngri landsliðum Islands í
körfubolta, handbolta og fótbolta á sama
tíma. Og hann segist hafa átt erfitt með
að gera upp við sig hvaða íþróttagrein
hann legði fyrir sig. Hann náði einnig
þeim einstaka árangri að leika með
meistaraflokkum KR í þessum þrernur
íþróttagreinum á sama tíma, áður en
hann sneri sér alfarið að knattspyrnunni.
Þann áratug sem Willum lék með KR í
efstu deild skorti liðið einhvern neista til
þeirra Brynjólfur Darri 4ra ára, Þyrí Ljós-
að landa stóru titlunum þótt liðið hefði á
að skipa frábærum knattspyrnumönnum.
„Við vorunt rosalega góðir í því að vinna
Islandsmótin innanhúss og Reykjavíkur-
mótin,“ segir Willum kíminn. „Það verð-
ur að segjast eins og er að á þessum tíma
voru tvö lið sérstaklega pirrandi, Valur
og Fram, sem voru að vinna stóru titlana
til skiptis. Ég hefði aldrei viðurkennt það
þá en það er staðreynd að þau voru bara
betri en við. Þótt við höfum haft úrvals-
mannskap vantaði alltaf eitthvað upp á,
Valur og Fram höfðu það sem til þurfti.“
Eftir að Willum lék sinn síðasta leik
fyrir KR sumarið 1989 söðlaði hann um
og lék með Breiðabliki næstu sex árin,
þar af fjögur í efstu deild. „í Breiðabliki
lék ég meðal annars með góðum Vals-
mönnum, Hilmari Sighvatssyni og Val
Valssyni auk þess sem Hörður Hilmars-
son og Ingi Björn Albertsson þjálfuðu
m.a. liðið á þessum árum. Við urðum
virkilega miklir mátar.“
Willum er kvæntur Asu Brynjólfsdótt-
ur lyfjafræðingi sem starfar hjá fomianni
Vals, Grími Sæmundsen, í Bláa lóninu
sem þróunarstjóri í meðferðarvörum.
Bömin þeirra em Willum 6 ára,
Brynjólfur Darri 4 ára, og Þyri Ljósbjörg
sem verður eins og hálfs árs um jólin.
„Það segir sig sjálft að það að vera þjálf-
ari er ekki mjög fjölskylduvænt en Ása
og krakkamir hafa stutt ótrúlega vel við
bakið á mér. Fjölskyldan mætir á alla
leiki og Ása matbjó ofan í KR-ingana
fyrir leiki, ásamt vinkonum sínum, og
menn kunnu vel að meta það. Ég gæti í
raun ekki verið þjálfari nema eiga skiln-
ingsríka eiginkonu.“
Willum er menntaður viðskiptafræð-
ingur og lauk síðan tveggja ára masters-
námi í rekstrarhagfræði í Danmörku. Það
má með sanni segja að hann hafi slysast
til að þjálfa eftir að hafa leikið með
Þrótti í 1. deild sumarið 1996. „Já, ég
datt inn sem þjálfari Þróttar sumarið
1997 eftir að Ágúst Hauksson þjálfari
fékk starf í Noregi. „Ég man ekki hvaða
leikmaður missti það út úr sér að það
væri bara fínt ef Willum tæki við liðinu.
Þá var liðið í 1. deild og við bárum sigur
úr býtum í deildinni."
Willum þjálfaði Þrótt í þrjú ár, tók síð-
an við Haukum í 3. deild og fór með lið-
ið upp í 1. deild á tveimur árunt (ávallt
sem sigurvegari) en þá virðast augu
manna í Vesturbænum hafa opnast fyrir
þeirra manni. Hann þjálfaði KR í þrjú ár,
landaði Islandsmeistaratitli fyrstu tvö
árin en síðastliðið sumar gengu hlutimir
ekki eins vel upp.
38
Valsblaðið 2003