Valsblaðið - 01.05.2004, Page 42
Margrát Lára....
Viðarsdótlir I Vðl
Nú í haust styrktist fslandsmeistaralið
Vaisstúlkna í knattspyrnu enn frekar
þegar Margrét Lára Viðarsdóttir úr
ÍBV gerði eins árs samning við Val.
Margrét Lára er aðeins 19 ára en er
þegar orðin fastamaður í A- landsliðinu í
knattspymu og hefur einnig leikið með
yngri landsliðum íslands. Hún hefur tvö
ár í röð verið valin efnilegasti leikmaður
íslandsmótsins. Með Margréti Láru inn-
anborðs em íslandsmeistarar Vals enn lík-
legri til frekari afreka á komandi tímabili.
Valsblaðið náði tali af Margréti Lám á ís-
landsmótinu í innanhússknattspymu en
þar lék hún á sínu fyrsta móti í Valsbún-
ingnum og stóð ásamt félögum sínum í
lokin uppi sem íslandsmeistari innanhúss.
- Nú ert þú búin að vinna þinn
fyrsta titil í Valsbúningi á fyrsta mót-
inu með félaginu. Segðu aðeins frá
þeirri tiltinningu og hvernig var að
spila við gömlu félagana í ÍBV?
„Tilfinningin var náttúrulega frábær að
vinna þetta mót enda er þetta eitt af mín-
um uppáhaldsmótum. Það var rosalega
skrýtið að spila á móti ÍBV en samt sem
áður líka gaman.“
- Nú átt þú glæsilegan feril í knatt-
spyrnu í yngri flokkunum og með
meistaraflokki ÍBV. Var ekki erfið
ákvörðun að koma til Vals í haust?
„Jú það var löng og erfið ákvörðun
en ég er sannfærð um að ég hafi valið
rétt og er mjög spennt fyrir framhald-
inu.“
- Segðu aðeins frá ástæðum þess
og aðdraganda að þú ákvaðst að
ganga til liðs við Val nú í haust?
„Ástæðan var sú að ég vildi
reyna að samræma fótboltann og
námið mitl betur. í fyrra var ég
hverja helgi í Reykjavík að keppa
eða æfa með landsliðinu og það
var bara of erfitt. Einnig er Valur
með frábært lið og frábæran
þjálfara. En ákvörðunin var erf-
ið.“
- Hvernig hefur þér verið tekið hjá
Val?
„Mér hefur verið tekið mjög vel bæði
af leikmönnum, þjálfara og stjóm. Ég
þekkti þjálfarann og leikmennina fyrir
svo ég held að það hafi hjálpað. Stemn-
ingin er góð, skemmtilegar stelpur sem
ná vel saman.“
- Hvernig leggst næsta tímabil í
þig? Er eitthvað félag í kvennaboltan-
um hér á landi sem getur staðist Vals-
stelpum snúning um þessar mundir?
„Það leggst bara mjög vel í mig. Við
erum með mjög gott lið en ég held að
ÍBV, KR og Breiðablik eigi eftir að vera
á toppnum ásamt okkur. Við verðum
samt að gera okkkur grein fyrir því að á
næsta ári leggja liðin extra mikið power í
að vinna okkur enda íslandsmeistarar."
- Hvernig var að spila á móti Vals-
stelpum í yngri flokkunum. Manstu
eftir skemmtilegum atvikum frá þeim
leikjum?
„Rimmurunar voru oft erfiðar og mikl-
ar. Við í ÍBV og Tý spiluðum marga úr-
slitaleikina á móti Val sem voru alltaf
mjög skemmtilegir og spennandi. Ég
gleymi því aldrei þegar ég var í 5. fl. með
Tý og við áttum úrslitaléik við Val á
Gull- og silfurmótinu og Beta kom til
okkar sem var þá að þjálfa stelpumar í
Val og sagði við okkur í Tý „sá sem vinn-
ur þennan leik er einfaldlega betra liðið.“
Þetta æsti okkur vemlega upp enda unn-
um við þennan leik sannfærandi 3-1.
Hvers vegna fótbolti? Hefur þú lagt
stund á aðrar íþróttagreinar?
„Já ég var alltaf í frjálsum íþróttum og
mikið í handbolta. Hætti í honum þegar
ég var 15 ára, þá kom Beta í ÍBV að
þjálfa og hálfpartinn bannaði mér að æfa
handbolta. En þá var ég að æfa fótbolta
með tveimur flokkum og handbolta með
tveimur flokkum. Plús það að vera í öll-
um landsliðunum svo ég held svona
eftir á að tímasetningin hafi verið
rétt að hætta."
- Hvernig líst þér á yngri
flokkana hjá Val?
„Ég hef nú reyndar ekki séð
mikið til þeirra. Þó er ég að-
stoðarþjálfari 5 fl. kvenna
og þar sé ég nokkrar stelp-
ur sem geta náð langt ef
þær leggja sig fram og
eru með hausinn í lagi.“
- Nú ertu aðstoðar-
þjálfari Betu í 5.
flokki kvenna. Hvern-
ig leggst það í þig?
„Það leggst bara
mjög vel í mig. Frá-
bært tækifæri fyrir
mig að fá að þjálfa
með Betu sem er að
mínu mati besti þjálf-
42
Valsblaðið 2004