Valsblaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 43
Eftir Guðna Olgeirsson
Margrét Lára í baráttu um boltann í úrslitáleik íslandsmótsins innanhúss 2004 á móti
Stjörnwmi sem Valur vann örugglega 2-0. (FKG)
ari landsins og á eftir að kenna mér
margt, þar sem ég hef mjög mikinn
áhuga á þjálfun."
- Hver eru þínir framtíðardraumar
í fótbolta, hver eru næstu markmið í
þeim efnum?
„Mínir framtíðardraumar í boltanum
eru að fara út og spila í góðu liði og
komast á stórmót með landsliðinu. Mín
næstu markmið eru að spila vel fyrir Val,
bæta mig sem leikmann og vinna ís-
landsmeistaratitil.“
- Hvað langar þig að læra?
„Mig langar að læra sjúkraþjálfun og
þjálfun.
- Hver stofnaði Val og hvenær?
Hversu mikilvægt er fyrir íþróttafélag
að rækta téngsl við sögu félagsins?
„Friðrik Friðriksson árið 1911 held ég.
Eg tel það sé mjög mikilvægt að rækta
tengsl við sögu félagsins og kenna og
segja krökkunum frá þessum merku
mönnum."
- Áttu heilræði til krakka í íþróttum?
„Haftði trú á sjálfum ykkur, leggið
ykkur ávallt fram við æfingar og leiki
því æfingin skapar meistarann."
- Áttu Iífsmottó?
„Ná mínum markmiðum, leggja mig
ávallt 110% fram á æfingum og í leikj-
um, æfa vel og markvisst og koma vel
fram við fólk. Vera góða stelpan alltaf
hehe.“
Knattspyrnuskóli
Vals og Smith & Norland
I sumar ákváðum við að prófa nýjar
útfærslur á knattspymuskóla Vals og
Smith & Norland. Skólanum var skipt
upp í 3 aldursflokka :
* 6. og 7.fl.ka. og kv. tilheyrðu
yngsta hópnum þar sem farið var
yfir gmnnþætti knattspymunnar.
Æfingar voru í leikformi þar sem
áhersla var á kennslu og að krakk-
amir hefðu gaman að æfmgunum.
Æfingar voru alla virka daga frá kl.
10.00- 12.00.
* 4. og 5.fl. ka. og kv. tilheyrðu mið-
hópnum. Iðkendum var skipt upp í
smáa hópa þar sem 4-6 æfðu saman
með einum þjálfara. Æfingar vom í
formi einstaklingsþjálfunar þar sem
áhersla var lögð á tæknilega þætti.
Æft var 4 daga vikunnar klukkutíma
í senn.
* 3. og 2.fl.ka. og kv. tilheyrðu elsta
hópnurn. Iðkendum var skipt upp í
smáa hópa þar sem 4-6 æfðu saman
með einum þjálfara. Æfingar voru í
formi einstaklingsþjálfunar þar sem
áhersla var lögð á tæknilega þætti.
Æft var 2 daga vikunnar klukkutíma
í senn.
Þetta nýja fyrirkomulag kom að mörgu
leyti vel út, iðkendur voru töluvert fleiri
en undanfarin ár. Iðkendur fengu mikið
út úr æfmgunum þar sem athyglin var
meiri á iðkandann í smáum hópi. Nýja
fyrirkomulag skólans þarf þó að þróa og
skipuleggja betur fyrir næsta ár en engin
spurning að þetta er nýjung sem er kom-
in til að vera.
Þjálfarar í knattspymuskóla Vals voru:
Dóra Stefánsdóttir, Guðmundur Brynj-
ólfsson, Jóhanna Lára Brynjólfsdótlir,
Jóhann Hreiðarsson og Sigurbjörn Hreið-
arsson.
Með kveðjufrá skólastjóra
knattspyrnuskólans
Elísabet Gunnarsdóttir
Valsblaðið 2004
43