Valsblaðið - 01.05.2004, Síða 45

Valsblaðið - 01.05.2004, Síða 45
Ferðasaga Meistaraflokkur karla ■ evrwj. . kepnmj handbolta ZUU4 Ferð hl Zurich eftir Gunnar Möller fararstjóra Efri röð frá vinstri: Sveinn Stefánsson framkvtemdarstjóri, Jóhannes Lange liðstjóri, Pavol Polakovic, Hjalti Pálmason, Ægir Hrafn Jónsson, Vilhjálmur Halldórsson, Ingvar Arnason, Kristján Karlsson, Elvar Friðriksson, Guðmundur Arni Sigfússon aðstoðarþjálfari, Oskar Bjarni Óskarsson þjálfari og Haraldur Daði Ragnarsson formaður hkd. Vals. Neðri röð frá vinstri: Baldvin Þorsteinsson, Ásbjörn Stefánsson, Pálmar Pétursson, Heimir Arnason fyrirliði, Hlynur Jóhannesson, Sigurður Eggertsson, Atli Rúnar Steinþórsson og Fannar Friðgeirsson. Loksins, loksins! Valur aftur með lið í Evrópukeppni í handbolta og það bæði í meistaraflokki karla og kvenna. Eftir að það var ákveðið í vor af stjóm og leikmönnum Vals að taka þátt í Evr- ópukeppni félagsliða í ár hófst öflug fjár- öflun á meðal leikmanna og stjórnar handknattleiksdeildar. Leitað var ýmissa leiða til að safna fjár til ferðarinnar, t.d. með því að vinna við vörutalningu, tína rusl og ýmis önnur verkamannastörf. Við rifjum hér upp ferðasögu meist- araflokks karla í stuttu máli. Já, það ríkti mikil spenna þegar dregið var í annarri umferð Evrópukeppni fé- lagsliða í handbolta. Við hefðum hæg- lega getað þurft að fljúga til eystri hluta Evrópu og leika á móti liði þaðan. En gæfan var með okkur í þetta skiptið og við drógumst á móti liði frá Sviss, Grasshopper - Club Zurich handball. í fyrstu var talað um að leika annan leik- inn hér heima og hinn í Sviss, en niður- staðan varð sú að við lékum báða leikina okkar í Sviss. Það var síðan árla morguns 7. október sem 20 manna hópur hélt af stað úr hlaði frá Hlíðarenda. Hópurinn innihélt leikmenn, þjálfara, aðstoðarmenn og stjómarmenn. Ferðinni var heitið til Ziirich. Ferðin gekk vel og með við- komu í Frankfíirt vorum við komin á áfangastað rétt um kvöldmat. Það var vel tekið á móti okkur í Zúrich. Við komuna byrjaði hópurinn á að koma sér fyrir á hótelinu en síðan var tekin létt æfing í Saalsporthalle, sem er heima- völlur Grasshopper. Fyrri leikurinn, sem spilaður var föstu- daginn 8. október, var heimaleikur Vals. í þeim leik lékum við ekki nógu vel í fyrri hálfleik. En virtist sem þreyta væri í strákun- um enda kannski ekki skrýtið þar sem við höfðum verið á ferða- lagi allan fimmtudag- inn. En það var betra lið sem kom inn á til að spila seinni hálf- leik. En tveggja marka tap, 21-23, var engu að síður staðreynd. Daginn eftir, laugar- dag, spiluðum við úti- leikinn. Menn voru staðráðnir í að vinna þennan leik og komast áfram. Stemningin í hópnum var gríðarleg þrátt fyrir að meiðsli nokkurra leikmanna væru að hrjá okkur. Við byrjuðum leikinn ekki nægilega vel og staðan í hálfleik var 15 - 11 Grasshopper í vil. En með mikilli þrautseigju og góð- um leik náðum við að jafna 18 - 18. Eftir það kom mjög góður leikkafli og allt stefndi í að við myndum sigra og komast áfram. En mistök undir lok leiksins, mis- notað dauðafæri og víti, urðu til þess að við náðum ekki að vinna og komumst ekki áfram í næstu umferð. Niðurstaðan varð jafntefli, 28-28. Menn voru ekki sáttir við niðurstöð- una en ef horft er til baka þá var þetta gríðarleg reynsla fyrir ungt lið okkar Valsmanna. Það jákvæðasta við þátttöku Vals í þessari Evrópukeppni er sú að nú er Val- ur komið aftur á kortið hvað Evrópu- keppni varðar og með áframhaldandi frammistöðu eins og í Sviss megum við vera viss um að framtíðin er björt. Valsblaðið 2004 45
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.