Valsblaðið - 01.05.2004, Page 54
Hver er Valsmaðurinn
SkalÉli; MW' ■"
Torfi Magnússon, einn litríkasti leikmaður Vals
Torfi Magnússon á að baki Iangan og
farsælan feril sem leikmaður og þjálf-
ari í körfubolta hjá Val. Torfi var í
Valsliðinu sem varð Islandsmcistari í
körfubolta 1980 og 1983 og vann auk
þess til fjölda annarra verðlauna á
þeim tíma. Síðan þá hefur Valur ekki
náð þeim árangri í körfu. Torfi á auk
þess langan og farsælan landsliðsferil
að baki í körfubolta.
Torfí varð vel við beiðni Valsblaðsins
um viðtal og greinilegt er að hugur hans
stendur til að Valur verði í ný stórveldi í
körfubolta og fari auk þess að leggja
rækt við kvennakörfu að nýju.
- Hvernig stóð á því að þú fékkst
áhuga á körfubolta?
„Jens bróðir minn var byrjaður að æfa
körfubolta á undan mér og ég eitthvað
farinn að prófa þessa nýstárlegu íþrótt.
Það er hins vegar Jóhannes Magnússon
sem er ábyrgur fyrir því að ég byrjaði í
körfubolta. Hann skoraði á Kjartan Jó-
hannesson vin minn að mæta á æfingu
inni á Hálogalandi hjá Körfuknattleiksfé-
lagi Reykjavíkur (KFR). Eftir það var
ekki aftur snúið, ég heillaðist alveg af
körfuboltanum. Áður hafði ég mætt á
nokkrar fótboltaæfingar hjá Val, senni-
lega fyrir tilstuðlan Gríms Sæmundsen,
sem var bekkjarbróðir minn um tíma í
Austurbæjarskólanum. Ég æfði líka
sund, en hætti því þegar karfan tók við.“
- Af hverju varð Valur fyrir valinu?
„Eins og ég sagði þá byrjaði ég í KFR,
en nokkrum árum síðar var það félag
innlimað í Val. Við það var ég mjög sátt-
ur þar sem ég hef alltaf verið mikill Vals-
maður.“
- Hver er að þínu mati helsti munur
á starfi félagsins þegar þú varst leik-
maður í samanburði við daginn í dag?
„Satt best að segja veit ég það ekki.
Þeir sem veljast til forystu í deildum í
Val gera það oftast af því að þeir vilja
láta gott af sér leiða. Það gengur mis-
jafnlega að fá fólk til starfa og hefur ekki
gengið sem best síðustu ár. Þetta hangir
mjög saman við gengið hjá meistara-
flokki. Að vísu er unglingastarfið og sér-
staklega foreldrastarfið mun betra núna.
Þjálfararnir upp til hópa eru betri og
menntaðri en í gamla daga.“
- Hvað er það minnisstæðasta sem
þú upplifðir sem leikmaður eða þjálf-
ariíVal?
„Sem leikmaður er náttúrulega minn-
isstæðast þegar við unnum alla titla 1980
og 1983. Það er náttúrulega alltof langt
síðan þetta var og verður að fara að gera
eitthvað til að koma deildinni almenni-
lega á blað aftur.“
- Hefur þú einhverjar skemmtilegar
sögur af leikmönnum eða leikjum frá
því þú varst sjálfur að spila?
„Það er oft verið að spara fé þegar far-
ið er í keppnisferðir. Við áttum að spila á
Akureyri gegn Þór. Vinnufélagi minn
sem er flugmaður ætlaði að fljúga með
helming liðsins norður, hinn helmingur-
inn fór með áætlunarflugi. Þegar til átti
að taka var vélin sem við áttum að fara
með ekki á staðnum og annarri reddað,
reyndar allt of seint og við fórum af stað.
Veðrið hafði versnað og þegar við kom-
um norður sá flugmaðurinn Eyjafjörðinn
í gegnum gat í skýin og steypti sér niður.
Hurðin á farþegarýminu opnaðist við
einhvem hristing og við vorum hálf
skelkaðir allir saman. Þegar við komum í
húsið var leikurinn hafinn með þeim
leikmönnum sem komnir voru. Að sjálf-
sögðu komumst við aldrei í takt við leik-
inn og í lokin vorum við einu stigi yfir
og við brutum á Þórsaranum Jóni Birgi.
Hann hitti ekki úr vítunum og sagði bara
að það væru ekki alltaf jólin.“
- Hvaða fyrirmyndir hafðir þú sem
leikmaður?
„Þeir leikmenn sem ég leit mest upp
til voru Þórir Magnússon félagi minn í
Val, Birgir Jakobsson í IR og Birgir Örn
Toifi Magnússon í landsleik 1985.
Birgisson í Ármanni. Þetta vom leik-
menn með stíl. Það var svo sjaldan sem
við sáum NBA leiki á þessum tíma að
þeir leikmenn urðu engar fyrirmyndir hjá
okkur.“
- Hvernig finnst þér uppbygging
körfuknattleiksdeildarinnar í Val und-
anfarin ár?
„Mér sýnist þjálfaramir vera að vinna
gott starf. T.d. var Ágúst Björgvinsson
mjög öfiugur sem yngri flokka þjálfari
og Bergur Emilsson er kominn í gang
með fína flokka í yngsta aldurshópnum.
Hins vega virðist vanta upp á að stjómin
sé með stefnumótun til framtíðar. Það er
ótækt að meistaraflokkur haldi áfram
jójó ferðalagi milli deilda. Til að fá öfl-
ugt lið þarf að byggja á heimaöldum
leikmönnum sem fá tækifæri til að
þroskast og verða betri í stað þess að að-
54
Valsblaðið 2004