Valsblaðið - 01.05.2004, Side 58

Valsblaðið - 01.05.2004, Side 58
ekki að hætta öllum afskiptum af knatt- spyrnu og sóttist eftir starfí sem þjálfari hjá Val,“ Olafur segist hafa hætt fyrr að leika knattspyrnu. „Ég endaði ferilinn í Bandaríkjunum en ég fékk styrk til að stunda knattspymu árið 1999 og eftir það ár ákvað ég alveg að hætta, en úti kynnt- ist ég þjálfun þar sem ég var aðstoðar- þjálfari hjá kvennaliði skólans og reynd- ar líka hjá strákum. Þjálfarastarfið heill- aði mig strax og eftir að ég kom heim sóttist ég eftir þjálfarastarfi hjá Val og það gekk eftir,“ segir Ólafur, sem einnig vildi ekki hætta afskiptum af fótbolta. Báðir tvíburanna segja að í raun haft aldrei komið til greina að þjálfa hjá öðru félagi en Val, þannig að Valshjartað í þeim er gríðarstórt. „Það heillaði mig aldrei að þjálfa,“ segir Ólafur kírninn, „en þegar mér bauðst að vera aðstoðarþjálfari háskóla- liðsins stelpna í Bandaríkjunum þá sló ég til og fljótlega fannst mér þetta mjög spennandi verkefni. Síðan þegar ég kom heim árið 2002 sá ég að það vantaði þjálfara í 3. flokk kvenna og ég sóttist strax eftir því um leið og ég mætti á svæðið. Það líka hentar mér mjög vel að þjálfa seinni partinn þar sem tíminn frá 5-8 hefur nánast allt mitt líf snúist urn fótbolta, þannig að þjálfuninn fyllir upp í þann tíma sem áður fór í æftngar, það er eiginlega lífsstíll að vera í íþrótlum á þessum tíma,“ segir Ólafur. Stónar stundir í meistaraflokki iijá tvíburunum Tvíburamir sögðust alltaf hafa verið í tómu ströggli í meistaraflokki. Þeir telja stærstu stundina í meistaraflokki hafi verið 1992 í Evrópukeppni bikarhafa, þegar Valur lék í fyrstu umferð við Mypa, lið frá Finnlandi sem þeir unnu og Valur komst í aðra umferð og lék við skoska liðið Aberdeen. „Það var rosafjör að taka þátt í Evrópukeppninni“ segja bræðumir. Annars fór gengi Valsliðsins stöðugt versnandi á 10. áratugnum sem endaði með því að liðið féll úr úrvals- deild 1999 í fyrsta skipti í sögunni. Bræðurnir Guðntundur og Ólafur léku á þessunt tíma með ýmsum góðum fót- boltamönnum, t.d. Sævari Jónssyni, Guðna Bergssyni eitt tímabil, Bjarna Sigurðssyni, Ágústi Gylfasyni, Jóni Grétari og Antony Karli Gregory. Jóhanna í sigursælum yngri flokkum Jóhanna er mörgurn ámm yngri en tví- burarnir og byrjaði snentma að mæta á Hlíðarenda á leiki með strákunum og fylgja þeim á æfingar. Hún segist ekki hafa haft neinn áhuga á fótbolta þegar hún var lítil en byrjaði að æfa 6 ára gömul með 5. flokki Vals, einfaldlega vegna þess að fjölskyldan var öllum stundum á Hlíð- arenda. hún segist bara hafa byrjað að mæta á æfingar með stelpunum þegar hún sá þær í fótbolta. „Ég fékk þó fljótlega áhuga á fótbolta og var örugglega 5 ár í 5. flokki og okkur gekk bara ágætlega. Beta (Elísabet Gunnarsdóttir) þjálfaði mig frá 5. flokki upp í 2. flokk og við vorum 8 minnir mig í mínum árgangi, sterkur hóp- ur sem stóð þétt saman og við náðum frá- bærum árangri og unnum nánast allt sem hægt var að vinna árum saman. Síðan varð ég í sumar Islandsmeistari með stelpunum í meistaraflokki og bikarmeist- ari í fyrra. Við erum bara þrjár eftir að æfa með Val úr þessum hópi, þ.e. ég og Dór- umar (Dóra María Lárusdóttir og Dóra Stefánsdóttir). Þetta hefur verið æðislegur tími og frábært að taka þátt í þessum fé- lagsskap upp alla yngri flokkana hjá Val,“ segir Jóhanna sem á glæsilegan feril í yngri flokkunum og greinilegt er að hún er afar stolt af stelpunum. Metnaðanfull bjálfarasystkini með skýr markmio Guðmundur segist alla tíð hafa haft mik- inn áhuga á íþróttum. „Ég fór líka í íþróttakennaskólann á Laugarvatni og útskrifast þaðan sem íþróttafræðingur árið 2000 og það lá nokkuð beint við að ég færi að þjálfa og um haustið fór ég að þjálfa 4. flokk karla hjá Val og fyrsta árið var ég bæði þjálfari og leikmaður með Val. Ég sá að það fór ekki sérlega vel saman og eftir að ég hætti sjálfur að spila hef ég einbeitt mér að þjálfun, fyrst hjá 4. flokki og síðan hjá 3. flokki karla. Mig langar að byggja upp sterka einstak- linga og góða knattspymumenn sem geta leikið með meistaraflokki félgsins á næstu árum, það er markmið mitt,“ segir Guðmundur ákveðinn. Olafur tekur heilshugar undir þetta sjónarmið og leggur áherslu á mikilvægi þess að leggja rækt við yngri flokkana til að byggja upp fyrir framtíðina. Einnig segj- ast þeir bræður líta á þjálfunarstarf frekar sem hugsjónastarf en atvinnu en ekki hefur hvarflað að þeim að vinna að þjálf- un hjá öðrum félögum. Þeir segjast báðir vilja eiga þátt í því að búa til einstak- linga hjá Val til að taka við keflinu þegar fram líða stundir og gaman að eiga þátt í því að byggja upp nýtt stórveldistímabil í sögu Vals. Jóhanna tekur heilshugar und- ir þetta sjónarmið bræðra sinna. Langun þjálfaraferill Jóhönnu „Beta (Elísabet Gunnarsdóttir) bað okk- ur Eddu Lám að þjálfa 5. og 6. flokk 1999, þá var ég 14 ára gömul, lítið eldri en stelpumar. Síðan varð ég aðstoðar- þjálfari í 5. flokki, fyrst hjá Betu og síð- an hjá Evu Björk, en fyrir þremur árum bauðst mér að taka við þjálfun 4. flokks kvenna sem ég hef þjálfað núna í þrjú ár. Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að hafa fengið þetta tækifæri að þjálfa svona ung og skil varla núna hvernig foreldramir gátu treyst mér svona ungri fyrir börnun- unt sínum, bæði á æfingum og í keppnis- ferðum en þetta er búinn að vera æðis- legur tími. Ég lærði ótrúlega mikið á því að vera aðstoðarþjálfari hjá Betu, hún er Þjálfarasystkinin á góðri stundu. Frá vinstri: Guðmundur, Jóhanna Lára og Ólafur. 58 Valsblaðið 2004

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.